Tímarit Máls og menningar - 01.11.1987, Page 122
Tímarit Máls og menningar
yfir vélum botnfiskanna
(45)
Augað veitir aðgang að hafinu en það
sefar jafnframt ofsa þess, því hafið er
samansafn allra hvata sem líkaminn býr
yfir: „Eg veit að öll ferðalög eiga sér
stað í Djúpinu" (28). Hafið er í senn
táknmynd blindrar draumvitundar og
líkamlegs samræðis. I því sökkva önnur
sjónarsvið: „I vatninu á ný. Augnlok.
Lokast þversum.“ Ljóðmælandinn og
samferðakona hans synda frá landi.
„Skórnir á ströndinni. Okkar. Lengra.“
Pau stefna út í hafsauga og svo í djúpið.
„Rakarastofuskilti upp úr botninum.
Auðvitað. Smokkfiskar. Ilmur. Ekki
grunaði mig. I. I vatni." (108)
Sjón er boðberi náttúrunnar; fá ís-
lensk ljóðskáld eiga betur skilið að vera
kölluð náttúruskáld. Ekki sveitaskáld,
heldur fyrst og fremst skáld hafsins,
okkar Sjó-nas. Það er því villandi (en
hver bjóst við öðru?) að kalla Sjón neð-
anjarðarskáld. Hann er neðansjávar-
skáld.
Astráður Eysteinsson
Höfundar efnis:
Anna Akhmatova, f. 1880, d. 1966. Skáld. Einn af forsprökkum „acmeista" sem
var hópur skálda sem fremur höfðu fagurfræðilega en pólitíska stefnuskrá.
Árni Bergmann, f. 1935. Rithöfundur og ritstjóri Þjóðviljans.
Ástráður Eysteinsson, f. 1957. Doktor í bókmenntafræði.
ísak Babel, f. 1894, d. 1941. Gyðingur sem samdi smásögur m. a. úr borgarastríð-
inu. Lést í fangabúðum í Síbiríu.
Andrei Bítov, f. 1937. Rithöfundur sem skrifar ljóðrænan og módernískan texta.
Bækur hans fengust ekki gefnar út um langt árabil. Var gestur Bókmenntahátíðar
’87.
Geir Kristjánsson, f. 1923. Rithöfundur og þýðandi.
Ingibjörg Haraldsdóttir, f. 1942. Rithöfundur og þýðandi.
Jevgení Jevtushenko, f. 1933. Eitt höfuðskáld kynslóðarinnar sem naut þýðu
Krústjovtímans.
Valentín Katajev, f. 1897. Rithöfundur. Skrifaði árið 1932 fyrstu „framleiðslu-
skáldsöguna" og þá bestu í flokki margra.
Vladímír Majakovskí, f. 1893, d. 1930. Einn helsti höfuðpaur rússneska fútúr-
ismans. Snerist á sveif með byltingunni. Skaut sig.
Osip Mandelstam, f. 1891, d. 1942. Skáld og „acmeisti" sem orti m. a. djarflega
um Stalín. Lést í vinnubúðum.
Boris Pasternak, f. 1890, d. 1960. Skáld. Hlaut Nóbelsverðlaun fyrir skáldsöguna
„Doktor Zhivago" en var neyddur til að afþakka þau.
Valentín Raspútín, f. 1937. Rithöfundur sem deilir á tæknihyggju og vegsamar
gömul gildi sveitalífsins.
Vasilí Shúksín, f. 1929, d. 1974. Smásagnahöfundur sem skrifaði mikið um al-
þýðufólk til sveita.
Mikhaíl Sjolokhov, f. 1905, d. 1984. Rithöfundur. Hlaut frægð fyrir skáldsöguna
„Lygn streymir Don“ og var alla tíð í miklum metum hjá stjórnvöldum. Hlaut
Nóbelsverðlaun 1965.
Þorleifur Hauksson, f. 1941. Lektor í Uppsölum.
512