Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1987, Blaðsíða 38

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1987, Blaðsíða 38
Tímarit Máls og menningar formúlum sósíalrealismans bættust bæði gyðingafjandskapur og rússnesk þjóðremba. Borgaralegir heimsborgarar voru þeir kallaðir á þessum tíma sem þóttu vanrækja þá nýju stefnu, að ekki aðeins væri sovéskt þjóðfélag og þar með sovésk menning fremri úrkynjuðu borgaralegu samfélagi á Vesturlöndum — heldur hefðu rússneskar bókmenntir alveg frá því snemma á nítjándu öld verið merkilegri, mannlegri og frumlegri en vest- rænar bókmenntir. Og þegar leitað var að sökudólgunum sem ekki höfðu „skilið“ forystuhlutverk rússneskra manna í listum og vísindum, reyndust þeir flestir bera gyðingleg nöfn. Svo mikið er víst, að á þessum árum er jiddíska, mál Austurevrópugyðinga, lögð niður sem bókmenntamál í Sov- étríkjunum og helstu höfundar sem á því skrifuðu voru handteknir og skotnir árið 1952 (David Bergelson, Perets Markish, Itzakh Feffer og fleiri). Þetta var mikil formyrkvun. Að vísu slokknar aldrei á öllum ljósum — á þessum árum komu út fyrstu sögur Veru Panovu, sem lýstu af ylgóðri samúð og mannskilningi hlutskipti kvenna og barna í stríðinu og á þeim erfiðu árum sem við tóku. En þegar á heildina er litið voru árin 1946-1954 þau verstu sem yfir sovéskar bókmenntir hafa gengið. Svo langt gekk lygin sem fegraði veruleikann blygðunarlaust, að fundin var upp svonefnd „átakaleysiskenning“. Röksemdir hennar eru eitthvað á þessa leið: Sovét- ríkin eru gott og réttlátt samfélag þar sem andstæðir stéttahagsmunir eru ekki lengur til. Verund mótar vitund, sagði Karl Marx, og því hefur þetta nýja þjóðfélag skapað nýjan mann, ósérplæginn, heiðarlegan, fórnfúsan hugsjónamann, sem setur almanaheill ofar einkahagsmunum. Þessir þættir eru ríkjandi í sovésku mannlífi og þess vegna tekur því ekki að gera sér of mikla rellu út af leifum hinna neikvæðari þátta í mannlegri breytni. Því fjalla sovéskar bókmenntir ekki um átök milli jákvæðra persóna og nei- kvæðra. Hið neikvæða er horfið úr mynstrinu. Sovéskar bókmenntir eiga að lýsa átökunum milli þess sem er gott og þess sem er enn betra. Til er í íslenskri þýðingu skáldsaga sem er skrifuð í þessum anda, „Saga af sönnum manni“ eftir Boris Polevoj, sem út kom árið 1950 og hlaut Stal- ínverðlaun. Þar segir frá atburðum sem gerðust í raun og veru. Flugmaður, Alexei Merésév að nafni, er skotinn niður í loftbardaga yfir landi sem Þjóð- verjar ráða. Hann slasast og gengur eða skríður dögum saman austur á bóginn og er bjargað af sveitafólki sem felur sig fyrir þýskurum úti í skógi. Honum er komið til sinna manna, en fæturna verður að taka af honum fyr- ir neðan hné. Hann er örvæntingu nær, en ákveður samt að sigrast á ör- kumlum sínum með viljastyrk og komast aftur undir stýri orustuflugvélar, þótt á gervifótum gangi, og eftir feikna erfiði og nokkurt málavafstur við bókstafstrúarmenn á skrifstofum tekst honum að ná settu marki. Það sem grefur undan hugsanlegum áhrifamætti þessarar sannkölluðu 428 i
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.