Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1987, Side 21

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1987, Side 21
Byltingin, bókmenntirnar og sósíalrealisminn streymir Don“ á margt sameiginlegt með „Stríði og friði“ Tolstojs. Þar er sífellt verið að flétta saman sögu hins „smáa“ heims og mannkynssöguna, stórorustur og heimiliserjur skiptast á, fjöldahreyfingar og það sem hugur einn veit. Þar er sýnt hvernig stéttaátök, styrjöld og bylting breyta lífi lítils samfélags, ryðjast inn í líf einstaklinga, ráða gæfu þeirra eða illu gengi. Ast- ir þeirra Grígorís Melekhovs og Axínju, giftrar konu, er kjarni frásagnar- mnar, má vera að þær séu sá þráður sem sterkastur er í heimi sem er að sundrast. Um leið er gefin heilleg lýsing á kósakkaþorpinu, siðum þess og sérleika, Rússlandi keisarans upp úr aldamótum, sem heimsstyrjöldin leik- ur grátt og svo er lýst ítarlega og m.a. með verulegum tilvísunum í skjöl og aðrar heimildir, stríði rauðliða og hvítliða á árunum 1918-1921. Grígorí Melekhov er aðalpersóna sögunnar, sá sem á kvölina og völina. Hann hefur ungur brotið af sér gegn feðraveldinu með ástarævintýri þeirra Axínju, og margt fleira á hann eftir að iðja sem kemur honum á skjön við það vald sem mestu ræður á hverjum stað og tíma. Hann er kvaddur í her- inn þegar heimsstyrjöldin hefst, og þegar líður að byltingunni 1917 er hann stríðsþreyttur orðinn og tekur því vel þegar keisaranum er steypt. Þegar svo borgarastyrjöld hefst í suðurhéruðum landsins snýst hann eftir nokk- urt hik gegn bolsévikum og berst með hinum hvíta her Deníkins. I raun- ínni getur hann hvorugum lotið, eins og margir aðrir kósakkar óttast hann að með valdi bolsévika verði endi bundinn á sérstöðu og frelsi kósakkanna, á hinn bóginn skynjar hann betur en liðsforingjar hvítliða að ekki er hægt að reisa við það gamla Rússland. Helst vildu kósakkar fá að vera út af fyrir sig — sumir þeirra láta sig dreyma um að segja sig úr lögum bæði við hvíta og rauða og stofna sérstakt kósakkalýðveldi við Don. Þegar leifar hvíta hersins hörfa undan byltingarsveitum frá Svartahafs- ströndum (næsti áfangastaður Konstantínópel) verður Grígorí eftir — og gengur í lið með hinu Rauða riddaraliði Búdjonnís. En hann er tortryggður sem fyrrverandi liðsforingi uppreisnarmanna gegn Sovétstjórn og sendur heim. Þar hefur mágur hans og góðvinur áður fyrr tekið við stjórn þorps- ms. Hann gerir Grígorí lífið leitt með ýmsum ráðum. Grígorí flýr og geng- ur enn á ný í lið með gagnbyltingarsveitum sem nú boða hina undarlegu kenningu að þær séu „með sovétvaldi en gegn kommúnistum“. Enn er Grígorí í flokki þeirra sem tapa. Hann hefur í sjö ár barist á öllum hugsan- legum vígstöðvum, hugrekki hans og manndómi hefur verið sóað til einsk- is. Helst vildi hann snúa heim í þorp sitt til friðsælla starfa — en kona hans og foreldrar eru látin, Axínja verður fyrir skoti þegar þau reyna að flýja saman og lætur svo líf sitt. Að lokum stendur hann á þröskuldi hálfhrunins húss síns og eini tengiliður hans við þennan heim er sonur hans ungur. Hvað svo verður veit enginn. 411
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.