Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1987, Side 39

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1987, Side 39
Byltingin, bókmenntirnar og sósíalrealisminn hetjusögu er blátt áfram það, að hún er skrifuð inn í svarthvíta heimsmynd. Helvíti — það eru hinir, hið illa er rækilega neglt upp við nasista og þeirra hernað gegn Sovétríkjunum. En sovésku persónurnar eru allar tilbrigði við sanna hugprýði og göfugmennsku. Allir eru samstíga í því að harka af sér raunir og leggja sig alla fram til að sigur vinnist sem skjótast. Allir leggjast á eitt um að hjálpa Alexei Merésév til lífs og afreka. Sveltandi bændur í felum sem gefa honum síðasta æta bitann, læknar á hersjúkrahúsinu, kommúnist- inn í næsta rúmi, sem er öllum stofufélögum sínum betri en nokkur faðir og deyr með uppörvandi spaugsyrði á vör. Að ógleymdum stúlkunum sem aldrei munu bregðast limlestum og skaðbrenndum unnustum sínum í hern- um. Eini maðurinn sem þarf að endurhæfa í siðgæði er stríðshetjan Strús- hkov, sem lítur niður á konur og heldur að þær séu allar auðveld bráð — fær hann að vonum makleg málagjöld áður en lýkur þegar sönn ást grípur hann sjálfan heljartökum. Tregða skriffinna í hernum við að leyfa fótalaus- um manni að fljúga er svo tiltölulega auðveld viðureignar eftir það sem á undan er gengið. Það var bæði þá og síðar eftirtektarverð þrautalending höfunda sem skrifuðu samtímasögur, að til að forðast átök milli persóna, vandkvæði sem áttu sér stoð í sovésku samfélag sjálfu, létu þeir hetjuna glíma við eitthvað sem að utan kemur, eitthvað sem ekki var hægt að skrifa á sovéska ábyrgð: andstæðingarnir eru herir Hitlers, eða þá (þegar komið fram fram á daga kalda stríðsins) útsendarar heimsauðvaldsins — eða þá skógarbrunar, flóð og aðrar náttúruhamfarir. Nú veit enginn lengur hve einlægar þessar bókmenntir voru. Vitaskuld vissu allir höfundar hve þröngur stakkur þeim var sniðinn — en á hitt er að líta, að þeir yngri þekktu vart annað en strangt eftirlit, þeir voru börn Stal- ínstímans og höfðu engan samanburð við aðra tíma — og síðan er það gamall og nýr sannleikur að flestir gefast upp við að lifa tvöföldu lífi við aðstæður sem þessar, þeir aðlagast hinum opinbera sannleika, sem þeir verða sífellt að tönnlast á sjálfir. Sjálfgert líka, að flestir þokuðu því til hlið- ar í huganum sem óþægilegt var, vegna þess að hinn sovéski þegn vissi sig máttvana, ómyndugan, hann var ekki annað en skrúfa í vél sem verkfræð- ingurinn mikli, Jósep Stalín, hafði saman sett og stjórnaði. Fyrir nú utan það, að ríki leynilögreglunnar, Gúlagið, var sveipað myrkri þagnar — hver og einn gat vitað af einstaklingum sem þangað hurfu, en enginn hafði yfir- sýn yfir það hvílíkt flæmi Gúlagið var. Þessi ár var Stalín víða nálægur í bókmenntunum, sögupersónurnar urðu gjarna á vegi hans og hann sagði eitthvað við þær sem var þeim stórkostlegt og ógleymanlegt — hversu hvunndagslegt sem lesendum utan hringsins sovéska kann að finnast. Það voru líka ort um hann Ijóð og drápur — þegar 429
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.