Tímarit Máls og menningar - 01.03.1999, Qupperneq 56
A.S. BYATT
„Nei takk. Ég vil heldur hafa minn eðlilega lit.“
Hann andvarpaði.
Hann tók að segja henni frá ástamálum sínum. Hún hefði hallast að
því hann væri samkynhneigður, miðað við það sem hún hafði fyrir
augunum. Stofan var full af fallegum ungum karlmönnum, þeir
komu, munduðu skærin um hríð, flissuðu saman úti í horni og fóru
aftur. Kínverjar, Indónesíubúar, Glasgowbúar, Suður-Afríkubúar.
Hann hrópaði til þeirra og flissaði með þeim, þeir skiptust á smágjöf-
um og borguðu hver öðrum skuldir sem voru litlar og skringilegar.
Eitt sinn var hún sein fyrir og kom að þeim þar sem þeir sátu í hring og
spiluðu póker. Stúlkurnar voru lægra settar og hressilega vonlausar.
Engin þeirra entist lengi. í þá daga klæddust þær bleikum sloppum
með rjómalitum silkiborðum. Hún taldi víst að hann ætti í ástasam-
bandi því hann var löngum stundum í símanum, ýmist ástúðlegur eða
heiftugur, röddin hvissandi, orðaskil heyrðust ekki, hún heyrði þó
beinskeittan hringlandann í hinni röddinni, eða röddunum, í símtól-
inu. Tímarnir hennar tóku að teygjast á langinn með öllum þessum
símtölum og langdregnum útskýringum hans, þeim fylgdu handa-
hreyfingar sem fengu hana til að fýlgjast í speglinum með ákefð hans,
hann var eins og drengur á hjóli sem hefúr sleppt tökum á stýrinu.
„Fyrirgefðu ef ég er eitthvað utan við mig,“ sagði hann. „Líf mitt er í
kreppu. Ég hefði aldrei trúað að það gæti gerst sem nú hefur komið
fyrir. Ég hef verið að leita einhvers alla mína ævi og nú er ég búinn að
finna það.“
Hann strauk sápu lauslega af blautum augabrúnum hennar og úr
augnkrókunum. Hún deplaði augunum.
„Ástin,“ sagði hann. „Fullkomin væntumþykja. Við gætum ekki átt
betur saman. Kraftaverk. Sú eina sanna. Frábærlega falleg stúlka.“
Henni datt ekki í hug neitt svar við þessu. Hún sagði, í kennslukonu-
tón, því hvaða tón annan gat hún notað? „Og er þetta það sem veldur
kreppunni?“
„Hún elskar mig, ég trúði því ekki en það er satt. Hún elskar mig.
Hún vill búa með mér.“
„En konan þín?“
Hann átti konu, sem hafði ekki haft skoðun á rósrauðu nektar-
myndinni.
46
www.mm.is
TMM 1999:1