Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1999, Qupperneq 21

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1999, Qupperneq 21
TILBRIGÐI VIÐ FORTÍÐ ólíkra hópa í samfélagi sautjándu aldar. Hver kona er fulltrúi ákveðins hóps, ákveðinnar menningarheildar, ákveðinnar orðræðu; ein þeirra er gyðingur, önnur kaþólsk og sú þriðja mótmælandi og á sér í ofanálag drauma um líf sem sjálfstæður listamaður. Fjórða konan, höfundur bókarinnar, útskýrir fýrir konunum sem mynda viðfangsefni hennar, og lesandanum um leið, að markmið hennar sé að sýna fram á hvaða áhrif ólík trúarbrögð höfðu á hugs- un og hegðun þriggja ólíkra einstaklinga á sautjándu öld, um leið og hún reynir að sannfæra lesandann um mikilvægi þess að skoða söguna út frá sjónarhorni einstaklingsins. Konurnar þrjár láta ekki sannfærast auðveld- lega um mikilvægi rannsóknarinnar eins og kemur fram í lokasenu leikþátt- arins: NZD (örvæntingarfull): Þið uppgötvuðuð hluti á mörkum hins hefð- bundna og hins óvenjulega. Þið sýnduð áræðni. Sérhver ykkar reyndi að fara ótroðnar slóðir. Mig langaði að vita hvað þar var sem fékk ævintýrafólk á sautjándu öld, bæði í Evrópu og utan hennar, til að reyna á þolrif samfélagsins og hvaða afleiðingar það hafði í för með sér. Marie de l’Incarnation: Drottinn ætlaði mér annað hlutverk í lífínu en „ævintýramennsku“. Maria Síbylla Merian: Davis sagnfræðingur, þetta hljómar eins og það sért þú en ekki við sem hafir verið á höttunum eftir ævintýrum. NZD (eftir stundarþögn): Já, það var ævintýri líkast að fylgjast með ykkur þremur á svo ólíkum sviðum. Mig langaði að skrifa um von ykkar um paradís á jörðu, um betri heim, þar sem ég hef sjálf borið þessa von í brjósti. Þið verðið að minnsta kosti að viðurkenna að þið höfðuð unun af því að lýsa veröldinni. Og hvað ykkur þótti gaman af því að skrifa, Glikl og Marie! Og Maria Sibylla, hvað þú naust þess að virða fyrir þér veröldina og mála það sem fyrir augu bar! Konurnarþrjár: Jæja, já ... hugsanlega ... NZD: Gefið mér annað tækifæri. Lesið bókina aftur.18 Með þessum hætti sendir Davis lesandanum skilaboð um það sem koma skal um leið og hún leggur áherslu á að hún sem sagnfræðingur tilheyri öðrum menningarheimi en þær konur sem eru viðfangsefhi hennar í bóldnni og því hafi hún takmarkaðar forsendur til að skilja sjónarmið þeirra. Davis hvetur konurnar þrjár til að lesa texta hennar aftur, og affur og aftur, þar til þær hafi öðlast skiling á þeim forsendum sem hún gengur út frá; þar til þær hafi lært á þá orðræðu sem bókin er skrifuð út frá. Davis hvetur konurnar þannig til að skoða texta bókarinnar og reyna að skálja menningarheim sem stendur utan við menningarheim þeirra og innleiða hina framandlegu menningu í eigin menningu. TMM 1999:3 www.mm.is 19
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.