Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.2004, Blaðsíða 8
Mismunandi heiti – mismunandi tækni
Í heimildum frá tímum Innréttinganna er annars vegar getið um „Duch-
mager Fabrique“ (þýska: tuch = klæði) og hins vegar „Zeugmager Fabrique“
(þýska: zeug = tau).9 Framleidd voru klæði annars vegar og tau hins veg-
ar. Í plöggum frá tímum Innréttinganna eru heitin stafsett á svolítið mis-
munandi máta. Í „Specification“ ritaðri af Skúla Magnússyni árið 1756
er nefnd „Duchmager Fabriqven“ og „Toymager Fabriqven“.10
Í skýringum Íslenskrar orðabókar má lesa að hugtökin klæði og tau
vísa til fatnaðar og álnavöru almennt. Einnig má sjá af skýringunum að
merkingin er að einhverju leyti sértæk.11 Þarf þá að leita vísbendinga um
sértæka merkingu í ritum sem fjalla um textíltækni, ullariðnað, ullarefni
og vörulýsingar. Í dönsku vörulexíkoni frá fyrri hluta 19. aldar er gefin
eftirfarandi skýring við hugtakið ullarefni:
Uldent Tøi, et ved uldent Garns Vævning fremkommet Tøi, deles
med Hensyn til dets Fabrikationsmaade i valkede eller Klædevarer,
og i uvalkede, eller Tøimagervarer.
a) Valkede eller Klædevarer,T.Wollentuch; F. Drap; E. Cloth forfær-
diges af kartet Uldgarn, som væves paa en Dugmagerstol og
ved Valkning gjøres tættere. De kunne være hvide, eller ufar-
vede, farvede, melerede, af hvid og naturlig farvet eller kunstig-
farvet Uld sammenblandet … .
b) Uvalket uldent Tøi, eller Tøimagervarer; Tøi, vævet fornemmeli-
gen af kæmmet Uldgarn, ofte ogsaa med en Tilsætning af
Angora = eller Gedehaar. Disse inddeles i glatte, kipprede, faç-
onnerede, pressede, fløielsagtige og trykkede.12
Tilvitnunin sýnir klárlega að um er að ræða tvenns konar voðir sem
greinast samkvæmt tilteknum framleiðsluaðferðum. Annars vegar eru
voðir gerðar úr ull sem kembd hefur verið á tiltekinn hátt, ofnar á til-
tekna gerð vefstóla og síðan þæfðar. Hins vegar er um að ræða óþæfðar
voðir, gerðar úr ull, sem kembd er á tiltekinn hátt, og nefnt er að stund-
um eru notuð önnur efni með ullinni.
Sjá má að áhöld og verklag er frábrugðið strax í upphafi voðagerðar –
í kembingu. Með mismunandi kembingu er tæknilega lagður grunnur að
tveimur mismunandi gerðum voða. Það er því vert að skoða þau atriði í
byrjun.
KALEMANK OG KLÆÐI 7