Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.2004, Blaðsíða 134
og Skeggjastöðum og eru einnig frá upphafi 17. aldar. Á þessari öld
breiddust tóbaksreykingar út um land allt. Pípubrot hafa fundist á Berg-
þórshvoli, Básendum, Stóruborg, Reykholti, Sandmúla,Akureyri,Tungu í
Fáskrúðsfirði, Nesi við Seltjörn og víðar (sjá 1. mynd).10 Í þessari grein er
fjallað um fundi úr Aðalstræti í Reykjavík, sem upp komu við uppgröft á
leifum vefsmiðju Innréttinganna á árunum 1971-1975, 2001 og 2003.
Á 18. öld gætti mjög áhrifa dönsku einokunarverslunarinnar á efna-
hagslíf og sögu Íslands. Fátt er vitað um tóbak, krítarpípur og tóbaks-
notkun á þessum tíma.11 Til eru skjallegar heimildir um tóbaksinnflutn-
ing. Þær elstu eru frá 1743, og gefa til kynna að það ár hafi verið flutt inn
31 tonn af tóbaki. Um þetta leyti eru íbúar landsins um 50.000. Næstu ár
er ákaflega mismikið flutt inn af tóbaki, frá 5 tonnum 1759 upp í 62
tonn 1788.12 Ekki er ljóst hvað valdið hefur þessum miklu sveiflum og
ekki verður séð að það vanti inn í heimildirnar. Þessi munur gæti ráðist
af því við hverja var verslað, viðskiptaaðstæðum eða veðurfari og hvaða
áhrif það hafði á siglingar milli landa. Opinberlega máttu aðeins kaup-
menn selja tóbak og líklega einnig pípur, þeir sem höfðu leyfi Danakon-
ungs.13 Á þessum tíma tókst mörgum Íslendingum einnig að komast yfir
TÓBAK OG TÓBAKSPÍPUR Á ÍSLANDI Á 18. ÖLD 133
1. mynd. Kort af Íslandi sem sýnir staði þar sem krítarpípubrot hafa fundist, fram til ársins
2002. Fjöldi fundinna brota tiltekinn innan sviga.
1 Akureyri (2) 2 Laufás (2) 3 Brekka (2) 4 Bárðardalur (1) 5 Hofstaðir (5) 6 Grímsstaðir (1) 7 Tunga (1)
8 Einholt (1) 9 Stóraborg (24) 10 Bergþórshvoll (2) 11 Skammkelstaðir (1) 12 Skálholt (674) 13 Neistakot (1)
14 Básendar (6) 15 Kapelluhraun (1) 16 Hafnarfjörður (1) 17 Arnarnes (1) 18 Bessastaðir (ca 900) 19 Kópa-
vogur (55) 20 Reykjavík (416) 21 Nes (30) 22 Viðey (914) 23 Reykholt (11) 24 Saurar (1) 25 Skarð (2)
26 Bjarneyjar (9) 27 Hagi (2) 28 Skeggjastaðir (1)