Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.2004, Blaðsíða 117
eiga að fást áreiðanlegar upplýsingar um minjar og minjalaus svæði og
það auðveldar greiningu búsetumynsturs.
Þegar greina á búsetumynstur er líka mikilvægt að vita hvar ekkert finnst.
Það er nauðsynlegt að skoða allt svæðið til að ákvarða hvar kunna að hafa
verið minjar, sem ekki eru lengur varðveittar (til dæmis tún sem hafa verið
plægð djúpt og uppblástursvæði), hvar eru góðar aðstæður til varðveislu
torfbygginga, en engar minjar finnast, og á hvaða svæðum eru minjastaðir.
Þar sem búið er að plægja eða umbylta jarðvegi niður í forsöguleg jarðlög
skoðum við röskuðu lögin til að sjá hvort þar séu mannvistarummerki, þó
að verið geti að engar byggingaleifar séu varðveittar eða ólíklegt sé að þær
finnist með fjarkönnunaraðferðum. Mikilvægt er að kortleggja þau svæði
þar sem aðstæður eru góðar til varðveislu en minjar finnast ekki. Þannig má
meta dreifingu minjastaða, sem skiptir máli þegar íslensk höfðingjadæmi eru
hugleidd. Yfirleitt er fljótlegra að staðfesta að engar minjar sé að finna,
heldur en finna þær og afmarka.Til að fá óbrenglaða mynd af búsetunni er
þó jafn mikilvægt að vita hvar eyðurnar voru.
Niðurstöður
Við völdum fimm svæði í Skagafirði til rannsóknar, og af þeim virtist
Langholt hentugast til að vinna nákvæma fornleifaskráningu og höfum
við einbeitt okkur sérstaklega að því svæði. Landið í Langholti er
myndað úr fjörukömbum frá ísöld sem hvíla á jaðarurð jökuls. Það rís
um 100 metra yfir sjó og skilur að láglendi Skagafjarðar og Sæmundar-
hlíðar. Vegna þess að þjóðvegurinn liggur nú ofar en gamli vegurinn
gerði eru flestar nýbyggingar spottakorn frá gömlu bæjarstæðunum.
Hjalti Pálsson25 hefur nýlega ritað um byggðasögu Langholts og má þar
sjá að þar hafa lengi verið býli af margvíslegum stærðum. Efst á ásnum
hefur orðið nokkur uppblástur, en austan í honum, þeim megin sem snýr
að flatlendinu, hefur hlaðist upp mikill jarðvegur og þar er gjóskulagið
frá 1104 víða vel varðveitt.26 Á Langholti völdum við bæi á mismunandi
stöðum allt eftir varðveisluskilyrðum.Við könnuðum þyrpingar af bæjum
þar sem voru bæði stór býli og smærri, með það í huga að fá samanburð
og skoða muninn á milli ríkra býla og annarra.
Við höfum nú verið við rannsóknir í tvö sumur og höfum skoðað 17
býli, misítarlega. Á Langholti hafa fundist tíu minjastaðir sem hægt hefur
verið að tímasetja með könnunarskurðum. Þrír þeirra voru töluverðan
spöl frá núverandi bæjarstæðum. Þeir sáust ekki á yfirborði, engin ör-
nefni vísuðu á þá og um þá voru engar sagnir.Yfirleitt bendir rannsókn
116 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS