Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.2004, Side 178

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.2004, Side 178
Gripir 137 gripir komu í ljós við rannsóknina. Langflestir komu í ljós syðst í skurðinum, undir kirkjuveggnum og var mest um járnnagla af ýmsum gerðum og í ýmiskonar ástandi. Langyngstu gripirnir voru í fyllingu í skurði, sem grafinn hefur verið meðfram kirkjuundirstöðunum á 20. öld. Þar á meðal voru vélsmíðaðir naglar, rúðubrot, bakelítstykki og moli af kítti sem verið hefur meðfram rúðu í kirkjunni. Í fyllingunni voru þó einnig gripir sem sýnilega eru mun eldri, sumir naglanna eru handsmíð- aðir og bronsnagli og nokkur glerbrot eru örugglega mun eldri. Þessum eldri gripum hefur verið rótað upp við uppgröftinn og þeir síðan lent niðri í fyllingunni aftur. Almennt verður lítið sagt um gripina sem upp komu næst kirkjunni. Þeir eru flestir af gerðum sem geta komið fyrir á hvaða öld Íslandssögunnar sem er. Innan um eru þó nokkur glerbrot sem geta verið gömul – frá 16. til 19. aldar og leirkersbrot sem eru mun eldri. Fimm leirkersbrot fundust við uppgröftinn og eru þau öll úr sama ílátinu. Natascha Mehler hefur greint brotin og telur hún að þau séu frá Austur-Englandi, af svokallaðri Grimston gerð frá 13.-14. öld.26 Þessar niðurstöður koma nokkuð á óvart því að engir aðrir gripir sem klárlega geta talist frá miðöldum fundust við uppgröftinn næst kirkjunni og kirkjugrunnurinn er frá því eftir 1500. Eitt af brotunum fannst í grunn- inum en öll hin voru í lagi sem myndast hefur á 17. öld og síðar. Eitt var í miðjum skurði milli 5 og 6 m norðan við kirkjuna en tvö voru skammt undir grasrót rétt norðan við norðurbrún kirkjugrunnsins. Þessi dreifing brotanna bendir til að þau hafi lent þar sem þau fundust löngu eftir að ílátið brotnaði og brotunum var hent. Ílátið gæti hafa brotnað á síðmiðöldum, lent í öskuhaugi, húsvegg eða grafist á víðavangi og síðan rótast til við byggingu kirkjunnar laust eftir 1500 og lent í und- irstöðum hennar og síðar jafnvel færst til aftur við rask í kringum kirkj- una. Það mælir með þessari skýringu að brotin eru öll lítil og mjög eydd eins og þau hafi orðið fyrir veðrun eða annarskonar hnjaski eftir að ílátið brotnaði. Einnig gæti hugsast að brotin séu úr kirkjugrip sem hafi fylgt Þingvallakirkju öldum saman og ekki brotnað fyrr en eftir að hún var flutt upp á hólinn norðan við bæinn.Til þess gæti helst bent að svo mörg brot úr sama grip sé að finna á tiltölulega litlu svæði. Á móti því mætti hinsvegar benda á að í kirkjugripaskrám Þingvallakirkju frá 1397 og 1570 eru engir gripir taldir sem líklegt má telja að verið hafi úr leir. Reyndar er ekki víst að ílátið hafi verið álitið slíkt verðmæti að það væri talið upp í kirkjugripaskrá. ÞINGVALLAKIRKJA 177
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.