Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.2004, Blaðsíða 182
skorningum þar sem jarðvegur hafði náð að myndast. Þeir sem fyrstir
reistu sér bú á Þingvöllum hafa því orðið að búa sér til tún, með því að
færa jarðveg á klappirnar í kringum bæinn og rækta á honum gras.
Þessi niðurstaða varpar nýju ljósi á forsögu Þingvalla. Eins og örnefnið
sjálft bendir hún til að þinghald á völlunum sé eldra en búskapur þar.
Býlið hefur ekki verið stofnað fyrr en eftir að þinghald var orðið fast í sessi
og orðið nógu mikilvægt til að það hafi svarað fyrirhöfn að reisa bú á svo
rýru landi sem Þingvallahraun er. Ljóst er að þessi túngerð hefur verið
hafin þegar einhver óheppinn þingmaður týndi smápeningi á hólnum
um 1100, en hversu löngu á undan er ekki hægt að segja að svo stöddu.
Þakkir
Rannsóknin var gerð dagana 21.-28. júní 1999. Uppgreftinum stjórnaði
Orri Vésteinsson, en auk hans unnu við hann prófessor Przemyslaw
Urbanczyk frá fornleifadeild háskólans í Varsjá, Magnús Á. Sigurgeirsson
jarðfræðingur, sem einnig sá um greiningu gjóskulaga, Gróa Másdóttir og
Jannie Ebsen nemar.Timothy Horsley fornleifafræðingur gerði segul- og
viðnámsmælingar í kringum uppgraftarstaðinn. Hildur Gestsdóttir og
Helga Soffía Einarsdóttir aðstoðuðu við frágang uppgraftarsvæðis. Jannie
Ebsen sá um forvörslu og frágang gripa en Sólveig Heiðberg fornleifa-
fræðingur skráði og gekk frá frumgögnum.Anton Holt, Myntsafni Seðla-
banka og Þjóðminjasafns, greindi norskan silfurpening og Halldóra Árna-
dóttir, Þjóðminjasafni, sá um forvörslu hans. Natascha Mehler fornleifa-
fræðingur greindi leirker og gler sem fundust við rannsóknina. Auk
þeirra eru þakkir færðar Sigurði Oddssyni, framkvæmdastjóra Þingvalla-
nefndar, og Guðrúnu Kristinsdóttur og öðrum landvörðum Þingvalla-
þjóðgarðs fyrir margvíslega aðstoð á meðan á uppgrefti stóð.
Tilvísanir
1 ÍF I, 14-17.
2 ÍF XVI, xxiv-xxix.
3 ÍF XVI, 21. Sama sögn er endurtekin í Kristni sögu, Biskupasögur I, 30.
4 ÍF V, 216.
5 Flateyjarbók III, 247.
6 ÍF XXVII, 214. sbr. Ólafs saga konungs hin mesta - Den store saga om Olav den
Hellige, 325.
7 ÍF XXVIII, 119. Sbr. Nóregs konunga tal, Fagrskinna, ÍF XXIX, 261. Sneglu Halla
þáttur, Flateyjarbók III, 415.
8 Flateyjarbók III, 344. Sbr. Morkinskinna, 170.
ÞINGVALLAKIRKJA 181