Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2005, Page 31
Lifandi verur
Ýmis dæmi koma fyrir í fomu máli um lifandi verur sem mikil helgi hvílir
á. Þar má nefna heilagan anda, helga engla, heilaga þrenningu, helga
brœður, helgar meyjar, helga menn og helga feður. Fólk var stundum, eins
og kunnugt er, tekið í heilagra manna tölu eftir dauðann, einkum fólk sem
ekki einungis var þakkað eitthvað sem það hafði látið af sér leiða heldur var
einnig tilbeðið vegna þeirra hjálpar sem það eftir dauðann gat veitt þeim
sem ákallaði það. Þannig er María yfirleitt nefnd heilög María, hin helga
María eða heilög mær í Islenskri hómilíubók og í Maríu sögu, og Olafs
helga Noregskonungs er víða getið í heimildum vegna þeirrar helgi sem á
honum hvíldi. í Flateyjarbók (111:559) er sagt um Guðmund ábóta: „And-
adiz Gudmundr aboti ... hyggia margir hann vera helgann mann. vrdu ok
margir merkiligir fyrirburdir i hans likferd.“ Marga fleiri helga karla og
konur mætti nefna eins og heilaga Cecilíu, heilaga Sófíu, heilaga Agötu,
heilaga Margréti og heilaga Katrínu úr Heilagra meyja sögum og heilagan
Þorlák biskup, heilagan Jón biskup, heilagan Blasius biskup og heilagan
Tómas erkibiskup.
Dæmi eru einnig um að menn væru sagðir heilagir í lifanda lífi ef þeir
höfðu helgað líf sitt Guði. í Biskupasögum (1:302) er t.d. sagt um Þorlák
biskup: „Göfugligan bróður várn Þorlák biskup, sem nú er andaðr, er gott á
að minnast, hvern vær trúum helgan verit hafa í sínu lífí og dýrðligan eftir
lífit.“ í A-gerð Guðmundar sögu góða má benda á annað dæmi sem er
svona:
ok skaltu ná at sjá verðleik heilagra manna er hér eru á yðru landi,
bæði lifendr ok andaðir, því at eigi eru á pðrum lpndum at jafnmiklum
mannfjglða fleiri helgir menn en á Islandi, ...
í C-gerðinni er vikið að biskupum og sagt:
Svá eru þeir byskupar sem nú eru á landi váru góðir menn ok helgir
sakir mikillar þolinmæði ok margra skaprauna er þeir þola af sínum
óhlýðna lýð, því at þess betri ok háleitari birtiz hverr fyrir Guði sem
hann berr meiri skapraunir með þolinmæði.1
Þar sem helgir menn voru valdir af Guði til að njóta himneskrar sælu var
hægt að nota orðið heilagur bæði um þá sem voru á lífi og þá sem voru and-
1 Stefán Karlsson handritafræðingur benti mér á þessi dæmi úr Guðmundar sögu en hann vinnur að útgáfu
á textunum.
29