Þjóðmál - 01.09.2009, Side 33
Þjóðmál HAUST 2009 31
þess í bók Guðna að ekki skyldi vikið að
þeim „háskólamönnum, sem árum saman
vöruðu við ofvexti bankanna og líklegum
afleiðingum þess“, þá minnist Guðni á þá
há skólamenn sem vegsömuðu bankana og
framgöngu forsvarsmanna þeirra . Þor vald-
ur vill nefnilega ekki að menn rifji upp um-
mæli hans sem hann lét falla í árslok 2007,
réttu ári áður en bankarnir hrundu . Þar sagði
hann sjálfur að bankarnir hefðu „í höndum
nýrra eigenda tekið stakkaskiptum á örfáum
árum“ og að íslensk bankaþjónusta væri
orðin að „gróandi útflutningsatvinnuvegi
og bankarnir græða á tá og fingri“ . Jú, sann-
leik anum er hver sárreiðastur . Ummæli þessi
eru sérstaklega rifjuð upp á síðu 98 í bók
Guðna . Má vera að það skýri hinn harða
dóm sem bókin fær í meðförum Þor valdar?
Hitt er að minnsta kosti víst að Ásgrímur
Elliða-Grímsson hafði á réttu að standa er
hann sagði: „Fár bregður hinu betra ef hann
veit hið verra .“ Þorvaldur finnur Guðna allt
til foráttu í veikri vörn sjálfs sín .
Hvað veldur?
En hvað veldur því í raun að Þorvaldur lof samar bækur Ólafs og Jóns en last-
ar bækur Þorkels og Guðna? Allar hafa
þessar bækur eitthvað til síns ágætis og
engin þeirra er fullkomin en hitt er víst að
dómur Þorvaldar yfir þeim er órökstuddur
og ómálefnalegur . Flest bendir til þess
að persónur, jafnt höfundarnir sem og
viðfangsefni þeirra, flækist mjög fyrir
Þorvaldi . Þá virðist það skipta sköpum
fyrir höfunda hvort þeir vegsama Þorvald
sem hinn mikla spámann sem allan tím ann
var aði við yfirvofandi hruni, eða hvort þeir
birta af honum eðlilega mynd þess manns
sem einnig klappaði upp bankana og hið
„sjúklega ástand“ í rekstri þeirra sem síðar
varð þeim að falli . Er það ekki sjálfsögð krafa
að prófessorar við merka þjóðarstofnun,
líkt og Háskóli Íslands er, fari í málefnalegt
manngreinarálit þegar þeir fjalla um menn
á opinberum vettvangi?
L íkamlega er hún smávaxin og fáguð en andlega og siðferðilega er hún
risi,“ segir Desmond Tutu erkibiskup og
handhafi friðarverðlauna Nóbels . „Aung
San Suu Kyi er nútíma helgimynd sið-
ferðilegs hugrekkis,“ segir rokkstjarnan
Bono í U2 . „Með því að helga líf sitt
baráttunni fyrir mannréttindum og
lýð ræði í Búrma berst Aung San Suu Kyi ekki
aðeins fyrir réttlæti til handa samlöndum sínum
heldur öllum þeim sem vilja vera frjálsir til að
ákveða eigin örlög,“ segir Vaclav Havel, fyrr-
verandi forseti Tékklands .
Í rúma tvo áratugi hefur Aung San Suu Kyi,
friðar verðlaunahafi Nóbels 1991, verið ein
um tal aðasta kona heims . Barátta hennar fyrir
mann rétt indum og lýðræðisumbótum í heima-
landi sínu, Búrma, hefur vakið heimsathygli
og að dáun . Lýðræðishreyfing hennar
vann af ger andi kosningasigur árið
1990 en her for ingjastjórnin, sem
ræður ríkjum í þessu ógæfusama landi,
hefur komist upp með að hundsa þau
kosningaúrslit í tvo áratugi . Þúsundir
óbreyttra borg ara hafa verið myrtar og
allir helstu stjórnar and stæðingar hafa
verið fangelsaðir . Sjálfri hefur Aung San Suu
Kyi verið haldið langdvölum í stofufangelsi
á heimili sínu í Rangoon og meinað að hafa
samskipti við fjölskyldu sína .
– Ein af jólabókunum í ár er bók Jakobs F .
Ásgeirssonar, ritstjóra Þjóðmála, um þessa ein-
stæðu konu sem vegna hugrekkis síns og hug-
sjóna varð á fáeinum vikum sameiningar tákn
þjóð ar sinnar andspænis grimmilegri kúgun
alls ráðandi herforingjaklíku .
Aung San Suu Kyi – jólabók