Þjóðmál - 01.09.2009, Page 44

Þjóðmál - 01.09.2009, Page 44
42 Þjóðmál HAUST 2009 Stuart Mill (1806–1873) um siðfræði .4 Fleiri áhrifavalda má telja svo sem skáldið Stephan G . Stephansson (1853–1027) . Kristján sækir innblástur í kvæði hans, enda var Stephan G . talsmaður svipaðra hugsjóna og Kristján heldur á lofti: upplýsingar, veraldarhyggju og áherslu á að siðferði grundvallast á tilfinningum, þörfum og hagsmunum sem eru að miklu leyti eins hjá fólki um alla jörð og á öllum tímum . * Bókin Social Freedom: The Responsibility View, sem kom út 1996, er byggð á dokt- ors ritgerð Kristjáns . Í þessari bók setur hann fram og rökstyður greiningu á frelsis- hugtakinu – eða því sem hann kallar félagslegt frelsi (social freedom) til aðgrein- ingar frá frelsi viljans – og skýrir um leið tengsl hugtakanna frelsi, ábyrgð og vald . Í sem allra stystu máli er kenning Kristjáns sú að manni sé frjálst að gera eitthvað ef engir aðrir menn bera siðferðilega ábyrgð á nokkru því sem hindrar hann í að gera það . Ein af mörgum áhugaverðum afleið ing- um þessarar kenningar um frelsi er að frels- is skerðing og valdbeiting fara alltaf saman . Sá sem beitir mann valdi takmarkar frelsi hans og sá sem takmarkar frelsi manns beitir hann valdi . Heimspekingar hafa öldum saman tekist á um ólíkan skilning á frelsishugtakinu . Segja má þó að samkomulag hafi verið um að líta svo á að frelsi sé það sem þrælar hafa ekki – það sem þá skortir til að geta lifað góðu lífi . 4 Siðfræði Níkomakkosar hefur komið út í íslenskri þýðingu Svavars Hrafns Svavarssonar og er eitt af Lærdómsritum Bókmenntafélagsins (Reykjavík 1995) . Í sömu ritröð hafa einnig komið út þrjú af mikilvægustu ritum J . S . Mill um siðfræðileg efni en þau eru: Frelsið í þýðingu Jóns Hnefils Aðalsteinssonar og Þorsteins Gylfasonar (Reykjavík 1970, 1978); Kúgun kvenna í þýðingu Sigurðar Jónssonar (Reykjavík 1997, 2003) og Nytjastefnan sem var þýdd af Gunnari Ragnarssyni (Reykjavík 1998) . Það er hægt að skoða ólíkar kenningar um frelsi sem ólík svör við spurningunni: Hvað er slæmt við hlutskipti þrælsins? Þessi svör má flokka á ýmsa vegu en nokkur hefð er á að skipta flestum þeirra í tvo flokka: Kenningar um jákvætt frelsi og kenningar um neikvætt frelsi . Jákvæðu kenningarnar kveða á um að til að vera frjáls þurfi maður að gera eitthvað eða hafa eitthvað tiltekið, t .d . að móta líf sitt í samræmi við sína eigin skynsemi eða vera fullgildur aðili að lýðræðislegum ákvörðunum um málefni samfélagsins . Neikvæðu kenningarnar kveða hins vegar á um að til að maður sé frjáls dugi að hindranir af einhverju tagi séu ekki til staðar . Orðalagið „neikvætt frelsi“ mun upp- runnið hjá Jeremy Bentham (1748–1832) sem sagði að frelsi væri neikvætt hugtak því það fæli ætíð í sér að eitthvað væri ekki fremur en að eitthvað væri, nánar tiltekið að hindrun eða tálmi væri ekki til staðar . Nú til dags er greinarmunur á jákvæðu og neikvæðu frelsi þekktastur af ritgerð eftir Isaiah Berlin (1909–1997) sem heitir Two Concepts of Liberty .5 Frakkinn Benjamin Constant (1762– 1830) gerði svipaðan greinarmun þegar hann talaði annars vegar um frelsi fornmanna og hins vegar um frelsi nútímamanna . Hið fyrrnefnda, sem svipar til jákvæðs frelsis, kvað hann felast í því að vera fullgildur þátttakandi í æðstu stjórn ríkisins en „frelsi nútímamanna“ tengdi hann borgaralegum réttindum – að allir megi tjá skoðanir sínar, velja sér starf, verja eignum sínum að vild og fara hvert sem er án þess að biðja nokkurn mann leyfis . Með allnokkurri einföldun má segja að frjálshyggjumenn og frjálslyndir hægri 5 Stytt útgáfa af þessari ritgerð er til í íslenskri þýðingu Róberts Víðis Gunnarssonar í bókinni Heimspeki á tuttugustu öld (ritstjórar Einar Logi Vignisson og Ólafur Páll Jónsson), Reykjavík: Mál og menning, 1994 .

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.