Gerðir kirkjuþings - 01.01.2013, Page 75

Gerðir kirkjuþings - 01.01.2013, Page 75
75 að prestar sem ættu að hafa fríhelgi ná því ekki. Hér ekki getið um kirkjulegar athafnir sem kalla og á presta til starfa um helgar eða barnastarf, sálgæsluviðtöl og fleira. Ekki er víst að unnt sé að leysa alls staðar messuskyldur og afleysingar með núverandi skipan prestsþjónustunnar. Í tillögum þjónustunefndarinnar frá 2010 var lagt til að héraðsprestar væru til staðar í öllum níu prófastsdæmunum ekki hvað síst til að ná utan um messuskyldur og afleysingar. Hlutverk héraðspresta er í dag m.a. að annast afleysingar fyrir sóknarpresta í söfnuðunum, ekki hvað síst í fjölmennum einmenningsprestaköllum þar sem messað er alla helgidaga. Stundum er þörfin fyrir afleysingar leyst á heimaslóðum þar sem algengt er að í fjölmennum sóknum séu tveir prestar starfandi, þótt eitthvað sé verið að draga úr því nýverið og embættin ekki auglýst. Þá hefur fækkað þeim söfnuðum sem höfðu burði til að ráða til sín presta og greiða þeim laun af sóknargjöldum. Nú eru aðeins þrjár sóknir, eru hafa presta þar sem sóknir greiðir laun þeirra, Keflavík (100%), Selfoss (70%) og Akureyri (50%). Eins sókn í Reykjavík (Neskirkja) hefur líka ráðið prest í fullt starf, en hann er nú í afleysingaþjónustu í annarri sókn. Hlutverk héraðspresta er þó ekki það sama alls staðar og gegna þeir oft mikilvægu hlutverki á sviði fræðslu innan héraðsins. Kanna þarf betur hvernig prestsþjónustan verður í raun á samstarfssvæðunum og hvort þörfin fyrir héraðspresta sé sú sama, meiri eða minni. Nefndin leyfir sér að benda á hvort ráða ætti ritara innan prófastsdæmisins til að halda utan um starfið með prófasti svo sem vegna samstarfssvæðanna. Eftir stendur að prófastar á þéttbýlissvæðum eru auk þess prestar í fjölmennum prestaköllum og þarf að skoða sérstaklega þjónustubyrði þeirra. Nefndin telur rétt að biskupafundur fjalli sérstaklega um hlutverk héraðspresta og auknar skyldur prófastanna. Laun og rekstur embættanna og tekjur og rekstur sóknanna. Samkomulag kirkju og ríkisins frá1997, svokallaða kirkjujarðarsamkomulag, fjallar um afhendingu kirkjujarða til ríkisins á móti skuldbindingu um að greiða laun presta og starfsmanna þjóðkirkjunnar. Þetta fyrirkomulag sem hér er við lýði og það fjármagn sem samkomulagið skilar af sér, stendur undir tilteknum fjölda embætta, og er ein meginforsenda þess að hér er unnt að halda úti prestsþjónustu í kirkjunni og hafa presta á launum um land allt. Ein nálgun kirkjuþingsnefndarinnar var að skoða kostnað við prestsþjónustuna. Þar vegur þyngst laun presta og embættiskostnaður þeirra. Nefndin hefur kannað launakostnað og embættiskostnað presta og notar það viðmið að kostnaður við eitt embætti prests séu að meðaltali um 10.2 millj. kr. á ári. Þá er ekki talinn með kostnaður við prestsbústaði eða húsaleigustyrkur sem sums staðar er greiddur þar sem prestsbústaðir eru ekki lengur fyrir hendi. Vitaskuld mætti tína til annan kostnað eins og rekstur hinnar sameiginlegu þjónustu á Biskupsstofu og hjá öðrum stofnunum kirkjunnar, ráðum og nefndum, sem augljóslega eru settar til að styðja við hið kirkjulega starf í sóknunum. Það er ekki gert hér. Samt sem áður er hér reynt að fá heildstæðari mynd af prestsþjónustunni með því að skoða ákveðna grunnþætti starfsins en einnig beinan kostnað við rekstur embættanna. (Sjá fylgiskjal B)
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.