Tímarit Máls og menningar - 01.02.2011, Blaðsíða 9
A ð l e s a T í m a n n o g va t n i ð
TMM 2011 · 1 9
vegna. Það gildir að sjálfsögðu ekki einungis um litar orð. Þetta hefur
afleiðingar sem vert er að hafa í huga við lestur ljóða flokksins, sýnir að
ljóðin hafa það ekki að meginmarkmiði að flytja merk ingu heldur að
vekja hug hrif, og umfram allt felur skáldið orðunum ekki að flytja eina
ótví ræða merk ingu. Af þeim sökum er sú aðferð fyllilega réttmæt frá
sjónarhóli skáldsins að hljóð (stuðlar) ráði að einhverju marki orðavali.
Í ann an stað veikir þetta bæði röksemdir um að flokkurinn sé túlkan-
legur með hefð bundnum hætti og að hann sé súrrealískt verk.8 Í einu
litar orði sér stak lega hafa þó ýmsir talið sig sjá tákn gildi eins og minnst
var á hér að framan: í orð inu ‚hvítur‘ er boði feigð eða vísi til hinnar
visnu handar Steins. Víst er hugsan legt að lesa orðið þannig að það feli
í sér slíkan merk ingarauka. Það er þó óþarfi og raunar í andstöðu við
meginaðferð bálks ins.
Sé þessi skilningur minn réttur er einnig hæpið að tala um táknkerfi
í Tím anum og vatninu eins og sumir ritskýrendur, til að mynda Preben
Meulen gracht Søren sen, hafa gert. Hvað táknar til dæmis vatnið í fyrsta
ljóði og víðar? Hið kven lega eins og ýjað hefur verið að?9 Það virðist að
ýmsu leyti freistandi ályktun því mörg ljóðin eru óður til konu, en þó
þrengir hún sögn orðsins óhóf lega að mínum dómi, fráleitt er að líta svo
á að vatn sé eingilt tákn í skáld skap. Hvað til dæmis um kvæð ið „Vatnið“
eftir Stein sjálfan?
Sál mín er eins og vatnið kalt og kyrrt,
og kvöld eitt munt þú stanza og horfa á það
forviða augum eins og lítill drengur.
Ó, litli drengur! Vatnið mjúkt og myrkt
á milli þín og heimsins fann sér stað.
Nú sérðu fyrst hve ferð þín illa gengur
– að fram hjá þessu vatni kemstu ei lengur.10
Og vatnið í Tímanum og vatninu er ekki alltaf sömu gerðar, stund um er
það renn andi, stundum stöðuvatn. Vatnið er minni eða stef í flokknum.
Það er dular fullt, vekur hughrif, flytur merkingu sem ekki er alltaf ljós.
Enda er orðið vatn ekki það sama fyrir skáldi og fyrirbærið eða efnið
vatn. En ég hygg það sé rétt hjá Kristínu Þórarins dóttur að sjá megi
textatengsl með Tímanum og vatn inu og Bókinni um veginn.11