Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2011, Page 127

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2011, Page 127
Á d r e p u r TMM 2011 · 1 127 kenningu um að aukinn sparnaður einhverra (t.d. vegna varúðarsjónarmiða) leiddi til aukins atvinnuleysis, minni tekna og minni heildarsparnaðar (sbr. söguna um bölvun ekkjunnar, e. Widow‘s curse). Það eru til einföld líkön í leikjafræði (e. game theory) þar sem skynsamir einstaklingar velja ekki þá lausn sem er best eða skynsamlegust fyrir þá sem taka ákvarðanirnar. Þessar niðurstöður, t.d. í líkaninu um vandamál fangans (e. prisoner‘s dilemma), fást vegna sérstakra aðstæðna. Það er hægt að búa til líkön þar sem skynsamir aðilar koma af stað eignaverðsbólum. Efnahagshrun getur átt sér stað þrátt fyrir að gert sé ráð fyrir að í hagkerfinu séu einungis skynsamir og forsjálir einstaklingar. Ef við gerum ráð fyrir að það sé óvissa í efnahagslífinu getum við fengið útkomur þar sem fólk tekur skynsamlega ákvörðun sem reynist síðar óskyn- samleg. Þegar óvissa er til staðar er eiginlega alltaf hægt að komast að því eftir á að það hefði verið hægt að taka skynsamlegri ákvörðun en þá sem tekin var, ef upplýsingar úr framtíðinni hefðu verið til staðar þegar ákvörðunin var tekin. Oftast er lítill munur á því sem var skynsamlegt þegar ákvörðun var tekin og því sem er skynsamlegt í ljósi reynslunnar, en þegar atburðarás sem talin var mjög ólíkleg á sér stað getur munurinn orðið mjög mikill. Við þessar aðstæður verður mjög freistandi að grípa til eftir-á-spekinnar og segja ákvörðunina óskynsamlegt rugl. Það er lítil skynsemi í slíkri mælistiku. Það er nærtækt að nefna tvö dæmi í þessu sambandi. Annað dæmi varðar gengistryggðu lánin sem fólk tók fyrir hrun. Það er auðvelt að sjá það í dag, eftir að gengi krón- unnar hefur lækkað um helming og verð á húsnæði hefur einnig lækkað, að ákvörðun um að taka gengistryggt lán árið 2007 til að kaupa íbúð var óskyn- samleg, en þegar ákvörðunin var tekin tóku flestir gengistryggð lán vegna þess að þeir töldu þau hagstæðari en önnur lán á markaðnum. Það eru vísbendingar um að fólk sem tók gengistengd lán hafi verið með tiltölulega háar tekjur og einnig tiltölulega vel menntað. Annað dæmi varðar aðgerðir ríkisstjórnarinnar og Seðlabankans til að bjarga Glitni og íslenska bankakerfinu í lok september 2008. Í pistli sínum í The New york Times hrósaði Krugman þessum aðgerðum en talsmenn íslensku bankanna vöruðu mjög ákveðið við þeim. Í dag er ljóst að ríkisstjórnin og Seðlabankinn vanmátu viðbrögð lánardrottna Glitnis við aðgerðunum og einnig áhrif þeirra á trúverðugleika hinna íslensku bankanna. Út frá því markmiði aðgerðanna að styðja Glitni og íslenska bankakerfið voru þær klúður einsog forystumenn bankanna höfðu sagt. Við vitum í dag að aðrar aðgerðir til að hjálpa bankakerfinu, t.d. þær aðgerðir sem forystumenn bank- anna vildu, hefðu einnig verið klúður. Á þessum tíma var íslenska bankakerf- inu einfaldlega ekki við bjargandi. Það voru vissulega mörg mistök gerð í aðdraganda hrunsins og margir vildu gjarnan að þeir hefðu breytt öðruvísi en þeir gerðu, en ef við mælum skynsem- ina í breytni þeirra án þeirrar yfirburðaþekkingar sem við höfum öðlast eftir hrunið og reynum að rifja upp þá þekkingu sem fólk hafði fyrir hrun og þær væntingar sem það hafði, sýnist mér sennilegast að sú forsenda að fólk hafi einfaldlega verið að taka ákvarðanir sem það taldi skynsamlegastar í ljósi
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.