Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2011, Side 10

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2011, Side 10
G u ð n i E l í s s o n 10 TMM 2011 · 4 heildarlosun koltvísýrings haldist innan 450 ppm markanna, þótt slíkt sé nauðsynlegt eigi hlýnunin ekki að fara yfir 2°C. Siðfræðingurinn Clive Hamilton telur að stefnumótendur hafi í raun sæst á þetta svo snemma sem árið 2005. David King, ráðgjafi breskra stjórnvalda, lýsti því yfir í september 2005 að 450 ppm markið væri „pólitískt óraunhæft“. Sama skoðun var sett fram af hagfræðingnum Nicholas Stern sem árið 2006 skrifaði í frægri skýrslu sinni að alþjóðasamfélagið ætti fremur að horfa til 550 ppm sem efri marka. Eins og Hamilton hefur réttilega bent á er nú þegar svo stutt í 450 ppm mörkin að hagsmunaaðilar og kjósendur munu aldrei taka í mál að gangast inn á þær ströngu aðhaldsaðgerðir sem óhjákvæmlega felast í 450 ppm viðmiðinu.7 Því er nánast útséð um að hægt verði að stemma stigu við hlýnuninni nálægt þeim mörkum jafnvel þótt þau geti engan veginn talist vistfræðilega ásættanleg. Sé ekki farið í róttækar aðgerðir á allra næstu árum verður sífellt erfiðara að snúa af þeirri braut sem þegar hefur verið mörkuð með aðgerðaleysi ráðamanna og almennings. Loftslagsumræðan er gríðarlega flókin. Þar er í einni bendu ólíkur hugsunarháttur og tjáningarmáti vísinda, stjórnmála og markaðar. Af­ leiðingin er sú að skilaboðin til almennings verða afskaplega misvísandi. Hér er að finna eina skýringuna á því hvers vegna vísindasamfélaginu hefur gengið svo illa að koma vandanum til skila. Lítið hefur miðað í rétta átt á síðasta áratug og sums staðar beinlínis orðið afturför. Svo dæmi sé tekið hefur þeim Bandaríkjamönnum sem trúa fréttum af hlýnun jarðar fækkað á undanförnum fimm árum, en þeir voru 79% árið 2006 en aðeins 59% á síðasta ári.8 Ekki bætir úr skák að valdamiklum hagsmunaöflum í viðskiptalífinu er mikið í mun að koma í veg fyrir að farið verði út í aðgerðir sem ógnað geti stöðu þeirra, t.d. á orkumörk­ uðum heimsins. Umtalsverðum fjármunum hefur verið varið í að draga vísindalegar niðurstöður í efa og eru slíkar aðgerðir dyggilega studdar af einstaklingum yst á hægri kanti stjórnmálanna sem berjast gegn hvers kyns takmarkandi stjórnvaldsaðgerðum á sviði loftslagsmála, þar sem þær myndu líklega leiða til aukinna ríkisafskipta.9 Almenningur á líka afskaplega erfitt með að gera sér í hugarlund umhverfisvanda sem smám saman safnast upp og hefur fyrst sýnilegar afleiðingar löngu eftir að lífríkinu hefur verið stofnað í hættu með aðgerða­ og fyrirhyggjuleysi. Áhættumat samfélaga byggist ekki alltaf á röklegum forsendum eins og ítrekað hefur verið sýnt fram á.10 Síðast en ekki síst má ekki gera of lítið úr stundarhagsmunum sem ýta iðulega langtímasjónarmiðum úr vegi. Í samfélagi þar sem orkusóun er til marks um auð og velgengni getur verið erfitt fyrir almenning
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.