Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2011, Side 47

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2011, Side 47
M í n k l u k k a , k l u k k a n þ í n , k a l l a r o s s h e i m t i l s í n TMM 2011 · 4 47 alskærum ómi sló útyfir vatn og skóg. Mín klukka, klukkan þín, kallar oss heim til sín. Þessi dagur markar eins konar skurðpunkt eða eigum við að segja vegaskil á söguleið þjóðarinnar. Það var vonbjartur regndagur sem gaf okkur nýtt tækifæri til að marka nýja braut og Ólafur Thors, forsætis­ ráðherra nýsköpunarstjórnarinnar, er tók við á sama ári, sagði að mann­ helgi skyldi vera kjörorð hins nýja lýðveldis. Það hefur hins vegar ekki ræst, því miður, og hinn alskæri ómur sem barst út yfir vatn og skóg, hefur misst tærleika sinn. Í klukkuna hefur aftur komið brestur. Fyrir okkur hefur farið líkt og Bjarti í Sumarhúsum. Það var ekki fátæktin og baslið sem beygði hann, heldur veltiárin sem svo eru kölluð í Sjálf­ stæðu fólki Halldórs Laxness. Ákefð okkar í velmegun var slík, að við sáumst ekki fyrir, náðum hvorki að stansa né íhuga á hvaða leið við værum. Ákefðin gagntók okkur svo, að henni fylgdi ábyrgðarlaus og óheftur ofmetnaður. Keppikeflið varð hið ytra prjál og óþarfa munaður, en hvort tveggja flokkast með hinum fornu dauðasyndum. Við héldum áfram að kjósa yfir okkur menn sem við vissum innst inni að voru bæði spilltir og vanhæfir, hvort sem það var af andvaraleysi eða von um að fá sjálf að njóta fyrirgreiðslu spillingarinnar. Sumir hafa talað um nýju fötin keisarans, en mér finnst önnur líking um klæðnað eiga betur við. Hvernig fer fyrir manni sem kaupir sér alltof stór föt í þeirri blekkingu að þau muni stækka hann sjálfan? Getum við ekki séð hann fyrir okkur skrönglast líkt og fuglahræðu innan í hólkvíðum fötum sem hanga utan á honum? Þannig fór með okkur velmegunin og hið svokallaða góðæri sem sumir kalla reyndar illæri, af því að þá fylgdi sá árgalli sem í þeirri fornu bók Konungsskuggsjá er talinn verstur, þegar óáran kemur í fólkið sjálft „eða enn heldur ef árgalli kemur í siðu þeirra og manvit og meðferðir er gæta skulu stjórnar landsins.“ Hinn nýi brestur Íslands­ klukkunnar hljómar í okkur sem siðferðisbrestur. Og við getum spurt með Jóhanni Jónssyni í ljóðinu Söknuði: „Hvar hafa dagar lífs þíns lit sínum glatað?“: Svo höldum vér leið vorri áfram, hver sína villigötu, hver í sínu eigin lífi vegvilltur, framandi maður: og augu vor eru haldin og hjörtu vor trufluð af hefð og löggrónum vana, að ljúga sjálfan sig dauðan …
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.