Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2011, Síða 78

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2011, Síða 78
Þ ó r a r i n n H j a r t a r s o n 78 TMM 2011 · 4 klassísk arabíska heldur almennt talmál og m.a.s. oft blanda af talmáli araba og rómanskra Íbera. Helstu tegundir þessara söngva nefndust muwassah og zajal og voru sungnir þvers og kruss um Andalúsíu, af kóngum sem kotungum. Yrkisefnið var einkum óhamingjusöm ást. Vinsæl hljóðfæri við slíkan söng voru lútan (móðir gítarsins) og rebeka (formóðir fiðlunnar). Vitnum nú í einn slíkan muwassah-söng. Hann er eftir Al­A’ma al­Tutili, sem er arabíska og þýðir „Blindinginn frá Tudela“ (þýðing: Daníel Á. Daníelsson og Þórarinn Hjartarson): Tár þau sem falla og brjóst sem er brennt: sem eldur og vatn. Þau fylgjast ei að nema á stærstu stundum. Hve drembnir þeir voru hans dómar í minn garð, því ævin er stutt en ástarþrautin löng. Ó, hve glöggt sýna andvörp þann sem ann! Ó, hversu tárin falla eins og foss! Svefn er mér bannorð – heimsókn má ei meir, ei frið, ei ró. Helst vil ég fljúga en til f lugtaks veit ei stað. Ó, Ka’ba, þú laðar hjörtun til þín heim, sem hrópa út sína ást og heimta andsvar. Hér fagnar þú syndara sem snýr til þín á ný. Hér er ég – um njósnarana hirði ekki hót. Hleyptu mér inn til að tigna og falla fram. Tak mér vel. Hjartað er gjöf mín og gimsteinn tár mitt hvert. Velkominn sé hann þó valdi hann dauða mér. Eitt mitti sveigt og augans undanlát, ó, hjarta kalt sem hugði ástin varmt! Nú kann ég skil á kaldri og harðri lund. Of stutt var hver hans nótt, og frá því að hann fór mín tár streyma, sem augnalokin orðin væru spjót! Ég herra mér kaus sem dæmir rangan dóm – ég meina hann þó nefni’ eg ei hans nafn. Mín sanngirni er lygileg í ljósi gerða hans. Spurðu hann um stefnumót, stóð hann við sín orð? Hann tætti úr brjósti mér bjargfasta ást. Auðmjúk er ég – þó treg, því að gleði hans velur sér að vild.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.