Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2011, Qupperneq 99

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2011, Qupperneq 99
Á r a m ó t a s k a u p i ð o g a ð r a r ó s p e k t i r u m á r a m ó t TMM 2011 · 4 99 öðrum tímum er snúið á hvolf og gert skoplegt. Skaupið beinir fyrst og fremst sínum spjótum að þeim sem valdið hafa hverju sinni, hvort sem um er að ræða stjórnmálamenn, „frægt“ fólk eða þá sem á einhvern hátt standa upp úr fjöldanum. Í skaupinu er oft hæðst að því sem alla jafna er tekið hátíðlega í þjóðlífinu og nýtur almennrar virðingar. Í gegnum tíðina hefur grínið til dæmis oft beinst að gamla bændasamfélaginu, Þingvallahátíðum, æðri listum og svo framvegis. Í skaupum síðustu ára er þetta þema ekki síður áberandi og má nefna að í skaupinu 2007 beindist til dæmis grínið að álfatrú Íslendinga. Skaupið hefst á atriði í flugvél þar sem þýsk hjón skiptast á skoðunum um hvort svokallaðir álfasteinar séu venjulegt grjót eða ekki, en slíkt grjót höfðu hjónin einmitt keypt í verslun á Íslandi. Í könnun sem gerð var árin 2006 og 2007 kom fram að meira en helmingur íslensku þjóðarinnar telur mögulegt, líklegt eða öruggt að álfar séu raunverulegir (Gunnell, 2007). Þessari trú flíka menn líklegast ekki hversdags en þrátt fyrir það þykir sjálfsagt að segja útlendingum frá þessari trú og má jafnvel halda því fram að álfatrú hafi verið markaðssett fyrir ferðamenn og dæmi eru um að erlendir ferðamenn komi hingað beinlínis með það fyrir augum að kynnast álfatrú Íslendinga. Trú á álfa eða aðrar vættir þykir ekki hæfa vel upplýstu fólki og bókmenntir þar sem söguhetjur láta tilfinningar sínar óspart og opið í ljós njóta ekki þeirrar virðingar sem áður var (Oring, 2003). En þrátt fyrir það að ekki þyki lengur við hæfi að setja á bók lýsingar á miklum tilfinningum hefur fólk samt sem áður til­ finningar og þeirra farvegur getur til dæmis verið húmor af ýmsu tagi. Ýmsar tilfinningar fólks fá útrás í húmor eða skemmtiefni yfirleitt og er skaupið dæmi um þessa útrás tilfinninga sem annars eru bældar. Dagsdaglega vilja Íslendingar ekki gera lítið úr því sem oft er kallað „menningararfur“ þjóðarinnar. Á hátíðastundum koma Íslendingar saman á Þingvöllum, heiðra minningu forfeðranna og hlusta á valdhafa flytja ræður. En þegar kemur að áramótaskaupinu er gert grín að þessum sömu valdhöfum og hátíðunum sem nokkrum mánuðum áður voru fjölmennar á Þingvöllum. Sú tilfinningasemi og virðing sem flestir bera fyrir hinum sögufræga stað víkur fyrir gríninu. Það er nefnilega ekki bara reiði og hatur sem fá útrás í gríninu heldur líka tilfinningasemi sem á vissum tímabilum snýst upp í andhverfu sína (Oring, 2003). Í skaupinu 2009 sást fjallkonan hlekkjuð á vegg eftir mikið sam­ kvæmi á Bessastöðum sem greinilega hafði farið úr böndunum. Fjall­ konan er flestum Íslendingum heilagt tákn fyrir þjóðina, frelsið, fjöllin, íslenskar konur og mæður yfirleitt. Bessastaðir eru helsta höfuðból landsins, aðsetur forseta landsins. Skaupið verður hér sérlega „karní­
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136
Qupperneq 137
Qupperneq 138
Qupperneq 139
Qupperneq 140
Qupperneq 141
Qupperneq 142
Qupperneq 143
Qupperneq 144
Qupperneq 145
Qupperneq 146
Qupperneq 147
Qupperneq 148
Qupperneq 149
Qupperneq 150
Qupperneq 151
Qupperneq 152

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.