Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2011, Page 102

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2011, Page 102
102 TMM 2011 · 4 Heimir Pálsson Nóbelsskáldið Tomas Tranströmer Þegar aðalritari Sænsku akademíunnar, Peter Englund, tilkynnti að Nóbelsverðlaun í bókmenntum þetta ár væru veitt sænska ljóðskáldinu Tomas Tranströmer, laust hópur fréttamanna og sérstakra áhugamanna um Nóbelsverðlaunin, sem jafnan hefur safnast saman úti fyrir dyrum Akademíunnar af þessu tilefni, upp fagnaðarópi. Það er ekki venja og hefur alls ekki gerst undanfarin ár. Skýringarnar sem maður hefur lesið í dagblöðum eru ýmsar: Tomas Tranströmer er ekki aðeins frábært ljóðskáld heldur einnig elskað skáld. Mönnum hefur lengi verið ljóst að hann er tvímælalaust einn þeirra sem eiga óumdeilt sæti innarlega á Bragabekk. Í öðru lagi, og það snerist ekki um þægilegar minningar, fannst greinlega mörgum að álögum væri létt af sænskum bókmenntum. Síðast þegar Nóbelsverðlaun í bókmenntum féllu í hlut sænskum skáldum voru það höfundarnir Eyvind Johnsson og Harry Martinson. Árið var 1974 og gagnrýnin varð skelfileg. Ekki var aðeins um að ræða sænsk skáld heldur sátu báðir höfundarnir í Akademíunni. Vinstrisinnaðir höfundar, sem voru eins konar samviska alheimsins við hlið Olofs Palme, ráku upp ramakvein og er skemmst frá því að segja að menn eru samdóma um að þetta hafi valdið því að Harry Martinson stytti sér aldur árið 1978. Ekki eru talsmenn samvisku alheimsins alveg þagnaðir enn því að hinn háværasti þeirra, Jan Guillou, hefur í útvarpi kallað það hneyksli að veita Tranströmer verðlaunin af því hann sé Svíi, sjálfsagt ágætt skáld, en aldrei muni Jan lesa eftir hann kvæði, né annarra manna óskiljanlegar bókmenntir (þ.e.a.s. ljóð). Í þriðja lagi má að sjálfsögðu benda á að í allmörg ár hafa ljóðskáld ekki hlotið Nóbelsverðlaun; skáldsögur, smásögur og leikrit hafa fremur átt upp á pallborðið hjá Nóbelsnefndinni. Tomas Tranströmer er engan veginn dæmigert skáld af sinni kynslóð.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.