Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2011, Side 126

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2011, Side 126
D ó m a r u m b æ k u r 126 TMM 2011 · 4 Karlhetjur Bergsveins Birgissonar, þeir Halldór, Gestur og Bjarni, eiga það allir sameiginlegt að vera óvenjulega veiklyndir karlar, einskonar andhetjur. Þeir eru forvitnilegir út frá sjónarmiði karlmennskunnar, ekki síst vegna þess hve mjög þeir eru allir bundnir karl­ mannlegu atgervi – í sjávarútvegi, menntun og landbúnaði – sem sam­ kvæmt venju ætti að duga til að færa þeim vald yfir eigin lífi. Það gerist þó ekki heldur standa þeir allir berskjald­ aðir sem fórnarlömb átakamikils til­ finningalífs. Þessar söguhetjur eru eig­ inlega sprottnar úr „glufum“ þeim á sál­ arhurðum er almættið hefur smíðað mannfólkinu og Bjarni vísar til í upp­ hafi bréfs síns. Hann finnur sig knúinn til þessa uppgjörs á lífi sínu af þeim sökum að „… allir eiga sér hurð. Og allir menn vilja hleypa sínum innri manni út um dyrnar. Og hurðin mín – það er gamla hurðin á fjárhúsunum hans pabba heitins hvar sólskinið kemur inn um sprungurnar, langt og mjótt á milli gisinna plankanna.“ Hann finnur dauðann nálgast, veit að hurðin hans „megnar ekki lengur að halda því innra aðskildu frá því ytra“ (bls. 8). Hið and­ lega, ástin eða kærleikurinn í formi ljóssins, hefur orðið hurðinni, eða því efnislega, yfirsterkara. Frammi fyrir dauðanum finnst Bjarna hann hafa valið rangt, en hann veit líka að hann er ekki fullkominn fremur en himnasmið­ urinn. „Og kannski er það einmitt það góða við smiðinn – að hann er ekki full­ kominn? Að það eru glufur og sprungur í verki hans sem hleypa sólskininu og lífinu í gegn.“ (Bls. 8.) Bjarna hefur sem sagt á langri ævi loks lærst að horfast í augu við ófullkomleika sinn – hann skilur að það er ekki hægt að endur­ skrifa líf sitt, einungis sætta sig við það. Svar við bréfi Helgu er fyllri og hnit­ miðaðri og betur mótuð en þær tvær bækur Bergsveins sem á undan komu. Hún felur jafnframt í sér stærri sann­ leika um mannlegt eðli þrátt fyrir að vera smá í sniðum. Þrátt fyrir gamal­ dags yfirbragð fylgir hressandi ný­ breytni karlhetjum Bergsveins. Nýnæm­ ið er ekki síst fyrir tilstilli sögusviðsins sem hann skapar þeim, ásamt óvenju­ lega djúpum skilningi á hefðum og for­ tíð sem Íslendingar hafa ef til vill ekki kært sig um að kljást of mikið við á undanförnum árum. Aðalsteinn Ingólfsson Hægara sýnt en greint Þröstur Helgason – Birgir Andrésson, Í íslenskum litum, Crymogea, Reykjavík, 2010, 180 bls. Ólafur Gíslason – Guðjón Ketilsson, 1990–2010, Crymogea, Reykjavík, 2010, 192 bls. Listasafn Íslands – Karl Kvaran, Listasafn Íslands 2010, 88 bls. Ásdís Ólafsdóttir og Páll Valsson – Krist- ín Gunnlaugsdóttir, Undir rós, Eyja, 2011, 144 bls. Haraldur Jónsson – TSOYL (The Story of Your Life), Útúrdúr, Reykjavík, 2010, 164 bls. Frá því Birgir Andrésson myndlistar­ maður lést árið 2007 hefur hans verið minnst með ýmsum hætti bæði af stofn­ unum og starfssystkinum; með sýning­ um, málþingum, útvarps­ og sjónvarps­ efni, sömuleiðis með þeirri bók eftir Þröst Helgason sem hér er til skoðunar. Auk þess er áformað að leggja heilt námskeið í listfræðideild Háskóla
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.