Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2011, Page 139

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2011, Page 139
D ó m a r u m b æ k u r TMM 2011 · 4 139 félags lýsingu, enda er hún byggð á traustri heimildavinnu, góðu innsæi rit­ höfundarins í tíðaranda aldarinnar og oft og tíðum lipurlegri túlkun heimild­ anna. Það verður enginn svikinn af lestri þessarar heimilda skáldsögu. Tilvísanir 1 Sjá Jón Samsonarson, „Ævisöguágrip Hallgríms Péturssonar eftir Jón Halldórs­ son“, Afmælisrit til dr. phil. Steingríms J. Þorsteinssonar prófessors 2. júlí 1971, bls. 74–96. Reykjavík 1971. 2 Magnús Jónsson, Hallgrímur Pétursson. Æfi hans og starf I–II. Reykjavík 1947; Margrét Eggertsdóttir, Barokkmeistarinn. List og lærdómur í verkum Hallgríms Péturssonar. Reykjavík 2005. 3 Barnsfæðingu hefur oft verið lýst sem ferðalagi. Þetta má til dæmis sjá á heima­ síðu Heilsugæslu höfuðborgar svæðisins, http://www.heilsugaeslan.is/pages/773, þar sem segir: „… og þá hefst ferðalag barnsins niður fæðing arveginn“. 4 Í ævisöguágripi sr. Jóns Halldórssonar í Hítardal segir um þetta mál: „Hallgrymur komst i ölempe fyrer kved skap edur ann­ ann þesshättar ungiædisskap vid fyrer kvenn folk a Hölum. eg meina ä seinustu ärum Halldoru Gudbrandzdottur …“ (sjá Jón Samsonarson, sama rit, bls. 84–85). 5 Lesa má formála Arngríms fyrir útgáfunni 1599 á www.bækur.is (Soliloqvia de pas- sione IESV Christi). 6 Arne Møller, Hallgrímur Péturssons Pas- sionssalmer. En studie over islandsk salme- digtning fra det 16. og 17. aarhundrede. Kaupmannahöfn 1922. 7 Sjá Íslenzk fornrit VII, bls. 49–50. Reykja­ vík 1936. 8 Jón Halldórsson, Skólameistarar í Skálholti eptir séra Jón prófast Halldórsson í Hítardal og Skólameistarar á Hólum eptir séra Vigfús prófast Jónsson í Hítardal. Sögurit XV. Reykjavík 1916–1918, bls. 53. Þess má geta hér að Guðbrandur Hólabiskup var um tíma skólameistari í Skálholti. Vésteinn Ólason Hellisbúar á upplýsingaröld Ófeigur Sigurðsson: Skáldsaga um JÓN & hans rituðu bréf til barnshafandi konu sinnar þá hann dvaldi í helli yfir vetur & undirbjó komu hennar & nýrra tíma. Mál og menning, 2010. Þessi skáldsaga fjallar um eldklerkinn svonefnda, séra Jón Steingrímsson, sem uppi var frá 1728 til 1791. Sagan er sögð í bréfum sem hann er látinn skrifa Þór­ unni konu sinni veturinn 1755 til 1756 þegar hann dvaldist að Hellum og raunar í helli í Mýrdal en hún barnshafandi norður í Skagafirði. Jón fór suður um haustið ásamt Þorsteini bróður sínum og ætlaði að fá Þórunni til sín næsta sumar eins og raun varð á. Frá þessari dvöl segir Jón á svo sem fimm blaðsíðum í sjálfs­ ævisögu sinni. Nútímamönnum mundi ekki þykja fýsilegt að eiga í miðju Kötlu­ gosi vetrardvöl í helli í Mýrdal, þótt þiljað væri fyrir opið, en um dvölina segir Jón sjálfur: „vorum við þar bræður báðir um veturinn og áttum þar það bezta og rólegasta líf“ (Jón Steingrímsson, Æfi- sagan og önnur rit. Kristján Albertsson bjó til prentunar. Reykjavík 1973, bls. 127). Líklega þekkjum við engan Íslend­ ing fyrir daga Jóns Steingrímssonar eins vel og hann. Svo er sjálfsævisögu hans og öðrum ritum fyrir að þakka. Ófeigur Sig­ urðsson hefur því úr miklum efnivið að moða þegar hann tekur að semja skáld­ sögu sína, sem er auðvitað bæði kostur og galli fyrir hann. Kostirnir eru augljós­ ir, en vandinn er að vinna þannig úr efn­ inu að sá lesandi geti fellt sig við sem þekkir eða leggur á sig að kynna sér heimildirnar en hinum sé ekki ofboðið.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.