Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2016, Page 8

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2016, Page 8
G u ð r ú n N o r d a l 8 TMM 2016 · 1 til Brynjólfur Sveinsson færði Danakonungi hana að gjöf. Skinnhandritin eru nefnilega viðkvæm, þau þola ekki eld, sagga né vatn. Aðstæður á Íslandi voru ekki hagfelldar skinnbókum, en samt varðveittust þær ekki aðeins eina kynslóð, heldur mann fram af manni, raunar oft í kvenlegg, öld fram af öld. Saga handritanna sjálfra er eiginlega dramatískari og leyndardómsfyllri en sjálf sköpunarsaga þeirra sem er reyndar oftast ókunn. Átta hundruð sextíu og átta handrit eða handritabrot á íslensku, auk fornskjala, hafa varðveist frá því fyrir 1600.5 Það er eiginlega kraftaverk. Torfbæirnir voru ekki góðir varðveislustaðir, jafnvel ekki sjálfir biskupsstólarnir. Í Skálholti urðu tíðir brunar og bókasöfnin fuðruðu upp, og latínuhandrit klaustranna hafa nær öll glatast. Engu að síður varðveittist fjöldi handrita þrátt fyrir andstyggðar veðurfar, plágur, hallæri og hinna löngu síðmiðaldir – allt til sautjándu aldar. Þá vakti Arngrímur lærði athygli á því í varnarritum fyrir Ísland að sjálfar heimildirnar um fornsögu Norðurlanda væru geymdar á norðurhjara veraldar – og áhuginn vaknaði í Danmörku og Svíþjóð á að ná handritunum úr landi. Þá sögu þarf ekki að rekja hér – né að rekja þá ástríðufullu ritun á pappír sem hélt áfram í landinu allt þar til prentaðar bækur tóku alfarið við. Þegar Ísland varð sjálfstætt ríki hófst baráttan fyrir auðlindunum og settu Íslendingar strax á oddinn forræði yfir handritunum í söfnum Dana og hafssvæðinu umhverfis landið. Handritamálið í Danmörku er raunar ein samfelld spennusaga í ætt við House of cards og myndi sóma sér vel í sjón- varpsseríu.6 Mikil áhersla var af hálfu Íslendinga lögð á að fá handritin heim, og var koma þeirra stórviðburður á síðasta vetrardag árið 1971. Aðeins ári síðar var landhelgin færð út í 50 mílur og 200 mílur árið 1975. Forræði yfir menningarlegum og efnahagslegum auðlindum var í höfn. Við erum ekki fátæk þjóð með þessar auðlindir, fyrir utan allar þær nátt- úruauðlindir sem landið færir okkur og þann auð sem býr í hverjum manni. En hvernig höfum við ávaxtað okkar pund? Íslendingar hafa markvisst fjárfest í rannsóknum og nýsköpun á hafinu og fiskistofnum og bylting hefur orðið í nýtingu sjávarfangs á síðustu árum, þó að deilt sé um aðgang að auðlindinni og skiptingu arðsins af henni. En fyrir tilstilli háskólarann- sókna, nýsköpunar, nýrrar tækni og öflugrar alþjóðlegrar samvinnu hefur tekist að vinna miklu meiri verðmæti úr hverjum fiski en áður var. Orðið hafa til ný og öflug rannsóknar- og nýsköpunarfyrirtæki eins og Marel og Matís, og keðja sprotafyrirtækja um allt land. En höfum við verið jafn stefnuföst í nýtingu á þeim auðlindum sem búa í safni Árna og öllum þeim heimildum, handritum, skjölum, upptökum og myndum sem varðveitt eru í öðrum söfnum okkar? Héldum við að sigurinn væri unninn þegar handritin komu heim? Gleymdum við að það þarf líka „að vinna friðinn“? Frá því að síðustu handritin komu heim frá Danmörku árið 1997 hafa orðið aldamót og ný iðn- og upplýsingabylting gerbreytt rannsóknaaðferðum og möguleikum til miðlunar og samskipta við útlönd. Í raun eru þessar breytingar ævintýri líkastar fyrir litla þjóð á hjara veraldar. Sú auðlind sem
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.