Tímarit Máls og menningar - 01.02.2016, Blaðsíða 23
É g g æ t i a l d r e i va l i ð e i t t o r ð
TMM 2016 · 1 23
líka – það er stórkostlegt að eignast barn og eiga orðlaus samskipti við nýja
manneskju – það hafði ég aldrei reynt. Þú ert stanslaust í samskiptum við
þessa manneskju, við látbragðið, fasið – mér fannst það mikið ævintýri. Og
þessi líkamlega reynsla af fæðingu er engu lík. Manni finnst líkaminn rifna
og á sama tíma að hjartað eða sálin opnist og í sömu hlutföllum og líkaminn.
Maður verður móttækilegri fyrir lífinu og berskjaldaðri. Barneignir mínar
og ekki-barneignir mínar hafa haft mikil áhrif á líf mitt. Eftir að eldri
stelpan fæddist liðu fjögur ár á meðan við reyndum að eignast næsta barn,
við misstum nokkrum sinnum fóstur og sú reynsla hafði sín áhrif. Ég var
eiginlega ófrísk í fjögur ár að seinni stelpunni, að þeim meðgöngum með-
töldum sem enduðu með fósturláti. Það var kallað: óútskýrt, endurtekið
fósturlát. Ekkert hefur mótað mig jafn mikið og að eignast og ala upp dætur
mínar. Á hverjum degi mæti ég sjálfri mér sem foreldri. Vonandi hafa dætur
mínar gert mig að betri manneskju.
Þetta var ótrúlega flott sagt, takk fyrir það.
Þetta var og er dramatískt, en á góðan hátt, börn gera mann glaðan.
***
Hvert er uppáhaldsorðið þitt?
Ég á ekkert uppáhaldsorð. Mér finnast orð falleg í samhengi. Þau geta verið
hvað sem er: kærleiksrík orð eða tilfinningarík – ég gæti aldrei valið eitt orð.
Hvaða orð er ekki í uppáhaldi hjá þér?
Alveg sama svar bara öfugt: grimm og tillitslaus orð.
Hvað gerir þig glaða?
Að vera úti í náttúrunni með fólki sem mér þykir vænt um.
Hvað gerir þig dapra?
Grimmd, tillitsleysi, ýmislegt þess háttar, bæði í sjálfri mér og öðrum.
Af hvernig hljóðum hrífstu?
Röddum, mannsröddum, bara röddum.
Hvaða hljóð þolirðu ekki?
Það eru vélarhljóð, sjónvarpshljóð í auglýsingum og amerískum þáttum
með áhorfendahlátri. Samt horfi ég mikið með stelpunum mínum á
ameríska þætti. Ég hef til dæmis líklega horft á margar seríur af How I Met
Your Mother, sem ég átti erfitt með í fyrstu því áherslan á kynlíf og áfengi
er svo mikil miðað við aldur áhorfenda, en þegar ég kynntist persónunum
sætti ég mig við það og hef gaman af. Ég get dottið í að horfa á hvað sem er