Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2016, Side 26

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2016, Side 26
K r i s t í n Ó m a r s d ó t t i r 26 TMM 2016 · 1 raunir með uppsetningu á texta bæði af skáldum og myndlistarmönnum höfðu átt sér stað í nærri því heila öld. Þess vegna kom mér á óvart hvað fólki þótti bókin vera tilraunakennd. Mér fannst þetta svo sjálfsagt. Þessi bakgrunnur í hugmyndalist hefur orðið til þess að mér finnst aldrei bara eitt, ákveðið form vera sjálfsagt, heldur skoða ég marga möguleika og reyni að finna sögum mínum það form sem þeim hentar best út frá innihaldinu. Já, listrænn metnaður felur sig ekki í uppsetningu og leijáti. Borg er minnis varði um tíunda áratuginn og hún er líka forspá og á undan sam­ tíðinni. Tuttugu árum síðar erum við stödd í heimi sem líkist betur bók­ inni en heiminum þegar hún kom út: innihaldið rætist! Endir bókarinnar er sannkallaður hápunktur þar sem renna saman tilbúinn heimur og augnablikið, rafheimur og lífheimur. Þetta er mjög flott gert. Borgin er staðsett á Íslandi og fær að láni atriði úr mörgum borgum. Í Skoti (1987) er lesandinn kominn til Rotterdam, þar býr ung íslensk kona, í lokin er hún á leið heim. Þarna les maður mjög fallegar lýsingar, af landslagi, af líkömum, svo bindurðu söguna saman með dálítilli aðstoð frá spennusögum. Þegar ég skrifaði Skot hafði ég lokið myndlistarnáminu í Maastricht og bjó í Rotterdam. Dag einn gekk ég fram á lík fyrir utan aðaljárnbrautarstöðina í miðbænum. Búið var að girða kringum það af lögreglu og breiða yfir það en skórnir stóðu út undan grænu klæði, einhver hafði verið skotinn. Ég fór að sjá fyrir mér persónu sem yrði fyrir skoti sem annarri persónu er ætlað. Þetta er ástarsaga með þræði um örlög og tilviljun og inn í söguna fléttast Rotterdam og tilviljunarkennt stórborgarofbeldi, bílasprengjur sem áttu sér stað á þessum tíma og fleira. Ég man til dæmis eftir fréttum af skotbardaga vegna bílastæðis. Í Skoti skrifaði ég um þetta þéttbýla fjölmenningarsamfélag og inn í það blandaðist persóna frá Íslandi með sinn þjóðsagnabrunn. Strengir, hún kom út 2000, hröð og skemmtileg Reykjavíkursaga. Það er ástarsaga og saga um móður, ég skrifaði Strengi ekki löngu eftir að ég eignaðist eldri dóttur mína, sem fékk mig eins og fleiri nýbakaðar mæður til að hugsa um hringrás lífsins. Í bókinni eru nokkrar kynslóðir einstæðra mæðra, nokkur móðir-dóttir sambönd og tengslin við náttúruna koma líka við sögu. Ung kona og móðir áttar sig á því að hún vill og getur staðið ein. Svo vildi ég skrifa um líf ungs fólks í Reykjavík. Hið fullkomna landslag kom út árið eftir hrunið mikla, 2009, og sýnir vel stemmingu hjá ríku fólki á Íslandi á fyrsta áratug þessarar aldar, bókin leiðir mann áfram með tækni krimma og upplýsir mann og fræðir um afkima myndlistarinnar. Aðalsöguhetjan hefur lært og starfað í Hollandi og kemur heim til að taka við starfi hér og fer svo burtu. Já, í millitíðinni hafði ég verið með handrit sem ekki varð að bók, það var safn af tengdum smásögum sem aftur tengdist fjölmenningarsamfélagi
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.