Tímarit Máls og menningar - 01.02.2016, Page 44
E g i l l B j a r n a s o n
44 TMM 2016 · 1
vana sinn að gefa minna en tvær og hálfa stjörnu. Annað er frávik. Ýktari
spönn fyrrnefndra blaða, þar sem viðtökurnar eru ýmist í ökla eða eyra,
skerpa greinileg skil milli eldri og yngri höfunda, sem fá að jafnaði lakari
viðtökur. Hvort þau sanna hið fornkveðna að æfingin skapi meistarann skal
ósagt látið. Atvinnustéttir rithöfunda og gagnrýnenda eru með varnarþing
í prímtölupóstnúmerum Reykjavíkur.17 Með ákveðnum rökum mætti segja
að báðir hópar hefðu hag af skjallbandalagi. Þessu er jafn erfitt að slá föstu
og því hversu mikil áhrif stjörnugjafir hafa raunverulega á sölutölur bóka.
Árangur í bókaútgáfu er oftar en ekki hending. Hver hefði svo sem getað
spáð sigurför litabóka á íslenskum metsölulistum síðasta árs?
Tilfinningaleg áhrif gagnrýni geta þannig verið öllu augljósari en
markaðsleg. Sjálfsævisagan Stúlka með höfuð lýsir hvernig starfsánægja rit-
höfundarins Þórunnar Erlu- Valdimarsdóttur sveiflast með viðtökum gagn-
rýnenda hverju sinni. Hauskúpan sem Þórunn fékk frá Kolbrúnu Bergþórs-
dóttur fyrir fyrstu skáldsögu sína, Júlíu, hefur ekki enn yfirgefið hennar
eigin höfuð.18 Í blaðaviðtali árið 1995 sagði Þórunn að gagnrýni dagblaðanna
skipti rithöfunda máli „því það eru svo margir sem frétta af henni en fáir sem
lesa sjálf verkin“.19 Og fyrir skemmstu viðurkenndi Jóhanna Kristjónsdóttir
að hún hefði hætt að skrifa eftir slæma gagnrýni.20 Játningar sem þessar eru
fáheyrðar. „Ég held að rithöfundar vilji oft ekki gefa gagnrýnendum vald yfir
sér með því að viðurkenna áhrif þeirra,“ segir Auður Aðalsteinsdóttir21 en
hún mun síðar í þessum febrúarmánuði verja doktorsritgerð sem ber heitið
„Ritgerð um ritdóma“.
Allt til ársins 2006 giltu sömu lögmál um stjörnugjafir hér og annars staðar
á Vesturlöndum: Þær voru nær eingöngu samkvæmisleikir síðdegisblaða.
Þann 14. nóvember 2006 breyttist það með tilkynningu á blaðsíðu sjötíu í
Fréttablaðinu. Þar voru þrjár málsgreinar um þessa nýjung: „Öll stærri dag-
blöð vestanhafs og austan bjóða uppá þjónustu af þessu tagi [og] hér á landi
hefur stjörnugjöf tíðkast á fjölda miðla.“22 Fyrri fullyrðingin, um að stjörnu-
gjafir tíðkist á stærri dagblöðum „vestanhafs og austan“, er hálfsannleikur.23
Sú síðari, um þá hefð fjölda miðla hér á landi, er líka afbökuð. Til þessa dags
átti stjörnugjöf sér eingöngu fordæmi á dagblöðum sem voru stofnuð eða
stýrt af Gunnari Smára Egilssyni. Og þáverandi ritstjóri Fréttablaðsins var
… Gunnar Smári Egilsson.
En það væru léleg félagsvísindi að eigna einum manni samfélagshefð.
Hvergi annars staðar en á Íslandi fylgja öll dagblöð og vikurit þessari
megind legu aðferð í bókmenntaumfjöllunum og því eðlilegast að leita í
jarðveg bókaþjóðarinnar. Hér á landi er bókaverslun án hliðstæðu. Á hverju
ári koma út um eitt þúsund bókatitlar, flestir á síðasta ársfjórðungi. Fæstir
Íslendingar hafa tíma til að setja sig inn í framboðið áður en þeir aka inn-