Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.2017, Síða 12

Tímarit Máls og menningar - 01.03.2017, Síða 12
K r i s t í n Ó m a r s d ó t t i r 12 TMM 2017 · 1 Frábært. Ísland utan Reykjavíkur er óskilgreint ævintýrasvæði í huga mér, drauma- land þar sem allt getur gerst. Ég þyrfti bráðum að fara sem túristi í hringferð og kynnast landinu betur. Viltu segja mér af bernskustöðvunum í Hlíðunum – landslaginu – þegar þú lítur um öxl og lítur ekki um öxl því Hlíðarnar eru jú þarna enn? Það er skrítið, en hvað slíkar bernskuminningar snertir á ég auðveldara með að laða fram stuttar, brotakenndar myndir; brest í trjágrein á votu malbiki þegar arkað er um götur í svörtum gúmmístígvélum; syfjaða störu úr strætóskýli á myrkum vetrarmorgni og klístrað hljóðið frá dekkjum farartækjanna sem þeytast hjá; stækjuna sem gýs upp úr eldhúspottinum hennar ömmu þegar ég lít til hennar í heimsókn og hún er mér til ólýsanlegrar skelfingar að sjóða lunda. Þetta eru stutt leiftur úr einhvers konar prívat veröld, tilfinningaástand. Nú sé ég fólk arka glaðbeitt um Hlíðarnar klyfjað bakpokum, rýnandi í landakort. Hvað búist þið við að finna hér? hugsa ég. Sjálfsagt vonast þau til að amma bjóði þeim í heimsókn og beri á borð soðinn lunda. Mhm og þeir stýfi lunda úr hnefa. Við sitjum á veitingahúsi í Kínahverfinu í New York – þú býrð í borginni. Viltu lýsa fyrir mér landslagi núverandi dvalarstaðar? Ég hef búið á þriðja ár í Bedstuy í Brooklyn, þar á undan vorum við í Queens. Bedstuy er mjög sérstakt og skemmtilegt hverfi, undirstaðan svo- kölluð brúnsteinshús, dæmigerð New York-stemning, langar götur skreyttar háum trjám, víður sjóndeildarhringur, birtan í borginni er svo sérstök, gyllt og glitrandi, mjög ólík íslenskri glannabirtu, sem orkar oft hálf áttavillt á mig. Hér eru kastalar og aðrar skrítnar og tignarlegar byggingar sem sleikja himininn, dularfullir turnar, ýmsar krúsídúllur í skreytingum frá þeim tíma þegar mannkynið leyfði enn fagurkeraeðlinu að trompa hagkvæmu eins leitnina. Að mér skilst bjó hér í upphafi 20. aldar margt tiltölulega efnað fólk, meðal annars frá Bretlandseyjum, en lét sig svo hverfa í kjölfar heimskreppunnar 1929, þá flæddi hingað fátækara fólk frá Manhattan, úr yfirfullu Harlem, og Bedstuy breyttist smátt og smátt í hálfgert gettó. Hús dröbbuðust niður; víða poppuðu upp krakkbæli, einkum á níunda og tíunda áratugnum; bandarískir vinir fullyrða að skyni bornar verur hafi ekki hætt sér til Bedstuy um langt árabil í öðrum erindagjörðum en að kaupa sér hugvíkkandi lyf. Þegar ég rölti um hverfið gleður nasirnar oft ljúf maríúanalykt í bland við kaffi- og kleinuhringjailm – mjög notalegt. Sumir leigubílstjórar skirrast við að aka manni hingað: You go to Bedstuy to die. Spike Lee-myndin Do the Right Thing gerist hér.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.