Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.2017, Side 15

Tímarit Máls og menningar - 01.03.2017, Side 15
M é r þ y k i r m j ö g g a m a n a ð v e r a b a r n TMM 2017 · 1 15 bara ferðast um kollinn á mér – og mér leiðist aldrei – það er helst að mér leiðist ef ég er látinn fá afþreyingu sem mér finnst ekki skemmtileg. En viltu fá uppáhaldsbækur í dag eða sem krakki? Stundaðirðu bókasöfnin? Manstu eftir bókaverði úr æsku þinni? Nei, en ég man vel eftir eiganda og afgreiðslumanni sjoppunnar rétt hjá æskuheimilinu. Hann stofnaði þessa fínu búð, sem var drekkhlaðin sælgæti og annarri munaðarvöru. Þangað fór ég með vasapeningana. Eftir því sem árin liðu skrapp hins vegar saman úrvalið í búðinni eftir því sem eigandinn þandist út. Brátt varð ljóst að eigandinn átti við alvarlegt offituvandamál að stríða – þá var búðin orðin næstum tóm. Einn daginn var búðinni svo lokað, ekki veit ég hvað varð um eigandann. Kannski sprakk hann? Jahérna hér. Manstu fyrstu bíómyndina sem þú sást? Nei – góð spurning! Það hefur örugglega verið einhver teiknimynd. Ég ólst upp á tímum þegar mest spennandi myndir í heiminum voru með Arnold Schwarzenegger og Sylvester Stallone – hrikalega vondar myndir, sem ég mátti ekki horfa á heima og sá því hjá vinum mínum. Einni mynd man ég samt eftir sem hafði mikil áhrif. Hún er bandarísk og heitir Nýliði ársins, Rookie of the Year, var sýnd í sjónvarpinu og ég átti hana líka á spólu. Hún fjallar um strák sem er venjulegur þangað til hann dettur og skekkir á sér handlegginn og öðlast við það ofurkraft í handlegginn, byrjar að spila hornabolta – sem ég vissi ekkert um – og getur kastað óvenju fast … Fórstu oft í bíó? Ég fór oft í bíó. Þegar ég var lítill var hægt að klippa frímiða úr fylgipésum með dagblöðunum sem hétu Fókus og Undirtónar. Við vinur minn fórum vikulega í bíó í eitt ár á þessum úrklippum. Hvort fannst þér skemmtilegra: bók eða bíó? Í dag bók af því ég get ekki horft á bíó nema fara í kvikmyndahús – það þarf manneskju til að slökkva ljósið og læsa dyrunum og segja: Þú verður að horfa, svo ég fylgist með, athyglisgáfan vaknar ekki öðruvísi. En ég held ég hafi ekki gert greinarmun á þessu þegar ég var lítill.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.