Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.2017, Page 30

Tímarit Máls og menningar - 01.03.2017, Page 30
K r i s t í n Ó m a r s d ó t t i r 30 TMM 2017 · 1 kaffihúsum; þar næ ég einbeitingu með því að stengja úti kliðinn. Skapandi truflun, gætum við kallað það. Á hvernig tónlist hlustarðu annars þegar þú ert ekki að skrifa? Malísk tónlist er núna í uppáhaldi. Ég gæti nefnt Talking Heads, elsku Talking Heads. John Martyn, The Waterboys, Prince, London Calling með Clash, Exile on Main Street með Stones. Djass: Keith Jarret, Bill Frisell. Nýj- asta Cohen-platan – og sú síðasta – er frábær. Cindy Lauper. En við gætum rætt tónlist spes í öðru, og jafnlöngu, viðtali. Já, þú teiknar – t.d. myndasögur – þú semur tónlist, leikur á gítar og syngur lög þín. Hvernig orka þessar listgreinar á skáldskapinn? Ég geri engan greinarmun á þessu öllu, þetta helst allt í hendur. Eða helst í „hendur“ – kannski mætti frekar segja að skrifin, tónlistin og teikningarnar séu ólíkir fingur á sömu hendi. Vanti einn fingurinn, minnkar geta handar- innar. „Ekkert rímar nema það sem er satt,“ skrifarðu á öðrum stað. Áttu þér list- rænt manifestó? Gleðin er aðalvopnið og lögmálið um lágmarksfyrirhöfn. Lögmálið um lág­ marks fyrirhöfn gengur út á að færast aldrei svo mikið í fang að þér líði illa eða missir móðinn, því þá frestarðu að koma hugmyndinni í verk. Einhver myndi segja að þá læri maður aldrei neitt nýtt en þú staðnar ekki á meðan þú kemur hlutunum í verk. Ég væri sem dæmi að skrifa sögu og inn í hana gengi garðyrkjumaður. Ég frýs og hugsa: Ó en ég veit ekkert um garðyrkju! En ef garðyrkjumaður gengur inn í sögu eftir mig hlýt ég að vita eitthvað um garðyrkju og það kemur – ég verð bara að treysta því. Oft skrifa ég um eitthvað sem kemur þó ég telji mig ekkert um málið vita í fyrstunni. Þess vegna hugsa ég: ég fékk þessa hugmynd og ég ætla að klára verkið, lögmálið um lágmarksfyrirhöfn áminnir mig um að hafa bara gaman. Ástæðan fyrir því að ég skrifa sögur er ekki sú að ég sé yfirburðafróður um garðyrkju heldur einmitt sú að ég kann að skrifa sögur. Mér finnst gaman að skrifa og stundum fæ ég á tilfinninguna að ýmsum öðrum höfundum þyki það leiðinlegt. Ég les oft viðtöl þar sem höfundar tönnlast á því hvað það sé erfitt að skrifa. Miðað við hvað? Þórbergur Þórðar- son fullyrti að erfiðara væri að skrifa bók en að reka síldarverksmiðju í átta ár. En hann hafði enga reynslu af að reka síldarverksmiðju. Það getur verið erfitt að skrifa bækur en er það ekki gaman? ***
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.