Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.2017, Side 54

Tímarit Máls og menningar - 01.03.2017, Side 54
E i r í k u r Ö r n N o r ð d a h l 54 TMM 2017 · 1 Málmleitarhliðin eru þröng einsog pírð augu Tólfunnar í sólinni eru þröng og þau mæna á litla bláleita kalla í boltaleik. Sagan er skrifuð af fjárfestum, bjúrókrötum og óligörkum í of litlum liðs- treyjum. Sagan er skrifuð af upplitsdjörfum manni með markmannshanska, skrifuð í jarðveginn með lítið notuðum takkaskóm, skrifuð í samskeyti óskhyggju og drauma. Það er lykilatriði að fá miða á leikinn eða smygla sér inn og muna svo að skrifa söguna þegar maður kemur heim, það er lykilatriði að rita hana á bókfell og rista hana í dagbækur í fánalitunum, skila dagbókunum á lands- bókasafnið og drepast. Ekkert getur varað að eilífu en sagan varir að eilífu, einsog ástin, einsog föðurlandið, einsog byrjunarliðið. Það sem ég vildi sagt hafa: Lögin, tempó, stöngin, tempó, vítin, tempó, Brexit, tempó, börnin sem sauma boltana og blóðugir fingur þeirra. Icesave. Tempó. Ég finn að ég er að missa tökin. Finn að við erum að missa tökin. Koma svo. Tempó. Einbeita sér. Leikurinn er annaðhvort við það að vinnast eða hálfnast. Við megum ekki við því að missa niður stemninguna, missa niður tempóið. Tempó. Allir sem eru ekki inni á vellinum eru tólfti maðurinn nema Eiður, sem er á bekknum. Tempó. Vonbrigðin eru til að fagna þeim. Vonbrigðin eru til að læra af þeim. Von- brigðin eru til að stía okkur í sundur, einsog ástin. Íslendingar, einsog ástin, eru gerðir til að sigrast á sjálfum sér; fósturjörðin, einsog ástin, til að sigrast á sjálfri sér; allt er þetta gert til að sigrast á sjálfu sér, til að knýja sig í duftið við dynjandi undirleik stuðningsmanna, flugeldasýningar og hvatningaróp frá furðu vilhöllum dómara. Niðurlægingin er alger og sigurvíman deyfandi. Niðurlægingin mun gera þig frjálsan og sigurvímunni fylgja niðurtúrar, bugun og uppgjöf. Niðurlægingin er sigurvegaranna, bræðin, heiftin og vonbrigðin eru sigurvegaranna; sigurvíman er kaos, hubris og joie de vivre. Ég meina Welt- schmerz. Ég meina sisu. Walking Spanish. Við erum áreiðanlega búin að tapa hvort eð er. Boltaleikir eru fyrir börn, einsog ástin, boltaleikir eru til að kynda þjóðar- stoltið, reisnina, tignina, einsog ástin, til að styrkja sjálfsmynd barna. Boltaleikir eru uppfyllingarefni, eitthvað til að brúa bilið milli auglýsinga. Boltaleikir eru ópíum atvinnuveganna, kurrið í kólíbrífuglum, frístunda-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.