Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.2017, Side 96

Tímarit Máls og menningar - 01.03.2017, Side 96
96 TMM 2017 · 1 Þorvaldur Gylfason Félagsauður, efnahags- þrengingar og Ísland1 Þýðing Hjörtur Hjartarson Inngangur Gróska í efnahagslífi er knúin áfram af ýmsum samverkandi þáttum. Þar á meðal er félagsauður í ýmsum myndum. Með því hugtaki er átt við ýmsa þá þræði sem halda þjóðfélögum okkar saman og gera þau starfhæf. Sam- heldnin stuðlar að því að hagkerfin og fjármálakerfin geti gengið snurðu- laust og drepa ekki á sér. Þessi þjóðfélagslega samheldni er ofin úr mörgum ólíkum þáttum. Jöfn tækifæri eru grundvallaratriði, með tilheyrandi jöfnuði í tekju- og eignaskiptingu. Sagan bendir til að glórulaus ójöfnuður grafi undan samfélagslegum friði og auðsæld. Annar grundvallarþáttur er traust, einkum traust sem almennir borgarar bera til pólitískra og samfélagslegra stofnana, en einnig það traust sem borgararnir bera hver til annars: traust milli manna. Þriðji þátturinn er heiðarleiki og ábyrgð í opinberu lífi. Það er að segja að víðtæk spilling – misnotkun á trausti almennings í þágu sérhags- muna, hvort sem er í viðskiptum eða stjórnmálum – sé ekki til staðar. Fjórði þátturinn er góð stjórnsýsla sem felst t.d. í að ráðið sé í opinber embætti eftir verðleikum. Í bók sinni The Great Crash 1929 (1988, 177–178) nefnir John Kenneth Gal braith fimm meginástæður fyrir því að bandaríska hagkerfið var í grund- vallar atriðum óheilbrigt 1929. Fyrst tiltekur hann „ójafna tekjuskipt ingu“. Hann bendir á að árið 1929 hafi hlutfall tekna einstaklinga af vaxta greiðslum, arðgreiðslum og leigu – þ.e.a.s. í stórum dráttum tekjur hinna betur settu – verið tvöfalt meiri en á árunum upp úr síðari heimsstyrjöld. Galbraith heldur síðan áfram og ræðir aukinn ójöfnuð með tilliti til „lélegs skipu- lags viðskiptalífsins“ og „lélegs skipulags fjármálakerfisins“ á veltiárunum upp úr 1920. „Amerískt viðskiptalíf hafði á 3. áratugnum opnað faðm sinn fyrir óvenjulega stórum hópi prangara, verðbréfagutta, blekkingameistara, svikahrappa og svindlara. Í langri athafnasögu slíkra manna var þetta e.k. hápunktur gripdeilda í viðskiptalífinu.“ Saga Galbraiths um Hrunið mikla 1929 rímar auðsæilega við æ útbreiddari skoðun á þeim atburðum sem urðu
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.