Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.2017, Síða 128

Tímarit Máls og menningar - 01.03.2017, Síða 128
U m s a g n i r u m b æ k u r 128 TMM 2017 · 1 umræða fyrir annan tíma. Þórbergur snýr bókmenntagervum léttilega á haus en kannski merkir það ekki síst að bók- menntagervin voru ekki beysin fyrir, ef þá ekki yfirborðslegar eftirhreytur liðins tíma. Skáldsagan er ennþá ný og við erum enn að berjast við að skilja hana. Í fjórða kafla sannast enn hvað Þór- bergur var slyngur sagnamaður. Fólk átti margt erfitt með að átta sig á því hvers konar bækur Suðursveitarbækurn- ar væru, ekki síst sakir ofurnákvæmni Þórbergs í lýsingum á húsakynnum á heimabæ sínum að Hala í Suðursveit („langur hali það“), en þessi nákvæmni helst þó í hendur við það að Þórbergur sýtir að fólk fyrri tíma hafi ekki haldið nákvæmar dagbækur um dagleg störf sín, hugðarefni, dægradvalir, lífskjör og allt hvaðeina. Allt eru þetta atriði sem fræðimönnum hefðu orðið til gagns við að greina og skilja horfin samfélög fyrri alda til hlítar, og Þórbergi sveið að þetta væri ekki hægt; þó að Þórbergur hefði reyndar manna best átt að vita hvernig „raunverulegir atburðir“ eiga til að verða í endursögn. Sjálfur hélt Þórbergur veðurdagbók, ítarlegar dagbækur, frumritaði bréf og geymdi áður en hann hreinritaði og sendi, og svo framvegis. Og fyrir vikið vitum við mun meira um Þórberg en ella – að svo miklu leyti sem hægt er að taka hann trúanlegan, sem er hreint út sagt ómögulegt að meta. Þórbergur bæði iðkaði það sem hann vildi óska sér að allir aðrir hefðu alltaf iðkað, það er nákvæma skrásetningu lífsatriða sinna, og skrifaði skáldverk eins og út frá slík- um heimildum jafnvel þótt hann þyrfti að ljá „veruleika“ þeirra skáldlega hjálp- arhönd út í eitt. Þar um er frægast dæmið af brúðkaupi foreldra hans sem hann segir frá líkt og hann, ófæddur, hafi verið viðstaddur. Sjálfum þótti mér vænst um saman- tekt Soffíu Auðar á kvöldvökum í Suð- ursveit sem fer langa leið að því marki að skýra sum hugðarefni Þórbergs á síð- ari árum (129–134). Það er ekki ólíklegt að kvöldvökur af þessu tagi hafi verið ævafornar að sniði, sem undirstrikar aldamótamennsku Þórbergs: öðrum fæti stóð hann í miðaldamenningu, en í hinn fótinn stóð hann sem boðberi nýrra tíma í íslenskum bókmenntum – og vissi það sjálfur, þótt hann stærði sig af því í írónískri fjarlægð. Þá kemur einnig fram sú skoðun að óbeit Þórbergs á kristinni trú í æsku hafi ef til vill skilað sér í því hversu gjörhugull hann var í gagnrýni sinni á kristindóminn í Bréfi til Láru (132–134), en það virðast þó helst hafa verið leiðindi illa skrifaðra vandlætinga sem fóru í taugarnar á honum fremur en að hann hafi endilega fundið sig í andstöðu við hin trúarlegu efni í kjarna þeirra, enda hætti hann aldrei að trúa á æðri máttarvöld þótt ekki væri hann kristinn.11 Og auðvitað eru lýsingar „ólíkindatólsins“ á sveitinni bullandi rómantískar, eins og Soffía Auður bendir á, en um leið gráglettnar eins og þegar hann segir kindur vera rómantísk skáld hverra sálir eftir hundruð þúsundir eða milljónir ára eigi aðeins eftir að fá bústað í mönnum (137–139). Soffía Auður færir fyrir því rök að íslenskunám Þórbergs hafi haft áhrif á ritstíl hans í annars stuttum kafla um námsárin 1909–1916. Það er ef til vill smáatriði, sem virðist því stærra sem bókin er annars ítarleg, en þar vísar hún til ritgerðar sem Þórbergur muni hafa skrifað til meistaraprófs við Heimspeki- deild en hann hafi ekki fengið að útskrifast vegna þess að hann hafði hvorki lokið gagnfræða- né stúdents- prófi (150). Þetta eru skýringar við Snorra-Eddu sem Þórbergur talar um í Meisturum og lærisveinum að hann hafi
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.