Loðdýrarækt - 01.09.1931, Síða 24
22
80 kr. eða jafnvel minna, og upp í allt að 1100
kr. Milliliðir og umboðsmenn, er silfurrefi selja,
eru vanir að flagga með verðlaunadýrum og
halda þeim í háu verði. En því er ekki að treysta.
Það er meiri trygging i því, að fá refi frá góð-
um búum af góðum kynstofni.
Eg kynnti mér nokkur af beztu búum Norð-
manna, og befi tvo menn í Noregi, til þess að
taka út þau dýr, sem eg liefi útvegað frá Noregi.
Þeir eru báðir sérfróðir i refarækt og annar
er varaformaður í Norges Sölvrævavlslag.
Stærð og útlit silfurrefs.
Fullvaxinn refur á að vera 1,12 m. á lengd,
frá nefbroddi til enda skottsins, og vigta í kring
um 7,5 kg. Grenlægja er minni, um 1.03 m., og
6 kg. þung. 7 mánaða gamlir ungar eiga að vera
10 cm. styttri en fullorðinn silfurrefur.
Fæturnir á silfurrefnum eiga alltaf af vera
svartir eða blásvartir. Einnig á bann að vera
svartur á maganum, ncðan á liálsinum og neð-
an til á lærunum, og sömuleiðis á skottið að
vera svart, en hvítt í endann.
A öðrum hlutum likam; ns eru vindhárin ljós-
’leit, silfurlit, og eru skinnin flokkuð eftir því,
hve þétt silfurliárin eru. Flokkarnir eru 6, frá
svörtum skinnum og upp í þau Ijósustu. Meðal-
silfurlitur á skinnum og þar yfir hefir hing„ð
til verið verðmætastur. Meðalsilfurlit skinn eru
nú verðmætust (j/2 silfur)..