Loðdýrarækt - 01.09.1931, Page 68
Kanínurækt.
Menn eru talsverl farnir að stunda kanínu-
rækt hér, sérstaklega í Reykjavík. Er það vel
farið, ef menn geta notfært sér afurðirnar, svo
að þeir fái fyrirhöfn sína borgaða. Kanínukjöt
er talinn ljúffengur matur og hollur, en allvíða
vill bera á heimskulegum viðbjóði á því, svo að
menn fást ekki til að leggja sér það til munns.
Það er að vísu ekki gott við það að fást, er
slíkur viðbjóður kemst inn hjá mönnum; menn
vilja heldur svelta heilu hungri en bragða á
þeirri fæðu, sem svo er ástatt með. Svo hefir
t. d. lengi verið með lirossakjötið hér hjá oss,
og er jafnvel enn, sérstaklega hjá gömlu fólki.
En um kanínukjötið er þó það að segja, að sum-
ar stórþjóðirnar, t. d. Englendingar og Frakkar,
éta ógrynnin öll af því. Brelmi segir svo frá
þvi, að um 1872, eða fyrir 60 árum, meðan rækt-
unin var miklu minni og ekki rekin með nálægt
þvi sömu hagsýni og nú, hafi verið étið yfir
. 70 þúsund vættir af kanínukjöti i Englandi og
hafi verðmæti þess numið um 35 milj. króna.
I Erakklandi er talið að á ári séu aldar 85—