Náttúrufræðingurinn - 2020, Síða 3
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
3
Þingvallavatn er eitt stærsta stöðu-
vatn Íslands og með þeim allra dýpstu,
björtustu og fiskisælustu. En Þing-
vallavatn er sannarlega miklu meira
en þessar lýsingar segja til um. Þing-
vallavatn er heill heimur, sannkallaður
undraheimur, þar sem fléttast saman
einstök jarðfræði og líffræði sem á
hvergi sinn líka. Hér á flekaskilum Mið-
-Atlanthafshryggjarins, eina staðnum
þar sem ganga má á honum þurrum
fótum, skiljast vestrið og austrið að, og
nýtt land verður til í krafti eldvirkni á
gosbeltinu sem sker landið í tvennt. Hér
á Þingvallavatn heima – í ungu, lítt mót-
uðu landi, landi tækifæra og nýsköp-
unar, á vettvangi nýmyndunar og þró-
unar lífs og jarðar.
En þessi undraheimur er ekki eyland.
Þingvallavatn og vatnasvið þess er órofa
hluti af stærri heild, Íslandi og jörðinni
allri og fylgir margslungnu samspili
efnis og orku, á sífelldu iði og hringrás.
Frumefni Þingvallavatns, vetnis- og
súrefnisatóm, og samband efnanna,
vatnsmólikúlin, hafa frá árdögum jarðar
ferðast um loft, láð og lög og munu gera
áfram. Sum vetnisatómin sem nú má
finna í Silfru gætu hafa átt sér samastað
í líkama risaeðlu fyrir um 65 milljón
árum. Eftir tíu ár er ekki útilokað súr-
efnisatóm í hreisturplötu murtu verði
bundin í kjarnsýru kórónaveiru.
Og enn stækkar heimurinn sem Þing-
vallavatn tilheyrir, nú í menningarsögu-
legu tilliti. Á Þingvöllum var stofnað
eitt elsta löggjafarþing á Vesturlöndum
árið 930. Síðan hafa Þingvellir verið
samofnir sögu þjóðarinnar – friðlýstur
helgistaður og sameiginlegur menn-
ingar- og náttúruarfur alls mannkyns,
eins og fært hefur verið til bókar í
Heimsminjaskrá Sameinuðu þjóðanna,
fyrst árið 2004 og síðar 2011. Þingvalla-
vatn innan þjóðgarðsins fellur hér undir
– blámi vatnsins og fegurð, brunnur
vatns og lífs.
Jónas Hallgrímsson skáld og náttúru-
fræðingur kallaði Þingvallavatn bjarta
vatnið fiskisæla fyrir nær tveimur öldum.
Það gerði hann í kvæðinu Til herra Páls
Gaimard sem hann orti Fransmann-
inum til heiðurs og þakkaði fyrir fram-
lag hans til rannsókna á náttúru Íslands.
Með hinu bjarta vatni vísar Jónas vafa-
lítið til tærleika Þingvallavatns, eins af
megineinkennum vatnsins og lýsandi
fyrir gerð þess og uppruna – hreint og
tært lindavatn sprottið fram undan
gropnum hraunum. Og lýsing Jónasar
á gnægð fiskjar er einnig sannleik-
anum samkvæm. Mælingar með vís-
indalegum aðferðum nútímans hafa
sýnt að vatnið getur gefið af sér um 45
kg af fiski af hverjum hektara á ári, alls
um 380 tonn. Það er óvenju mikil fram-
leiðni fyrir stöðuvatn á svo norðlægum
slóðum. Jónas gerir náttúru Þing-
vallasvæðisins einnig snilldarleg skil í
kvæðinu um Fjallið Skjaldbreið þar sem
hann lýsir af næmleik vatnanáttúru og
sköpun jarðmyndana á svæðinu. Jónas
nam náttúrufræði við Hafnarháskóla
og það er ekki fjarri að kalla hann fyrsta
íslenska vistfræðinginn, svo heildstætt
sem hann skynjar náttúruna.
Annar vistfræðingur og nær okkur
í tíma er Pétur M. Jónasson pófessor
emeritus í vatnalíffræði við Hafna-
háskóla. Pétur, sem verður 100 ára
í ár, hefur á langri ævi helgað sig
rannsóknum á sviði vatnavistfræða
og fengist við athuganir á stöðu- og
straumvötnum á Íslandi, Danmörku,
Noregi og víðar. Þetta hefti Náttúru-
fræðingsins er helgað Þingvallavatni
og gefið út Pétri til heiðurs fyrir hið
stórmerka ævistarf hans og framlag á
sviði vatnavistfræða og náttúruverndar,
hér heima og erlendis. Sjónum er beint
að Þingvallavatni og vatnasviði þess
– vatninu sem Pétur kynntist ungur
sem smali í Miðfelli og síðar meir sem
forystumaður fyrir umfangsmiklum
alþjóðlegum rannsóknum á vistfræði
alls vatnasviðsins.
Rannsóknir á Þingvallavatni og
vatnasviðinu hófust að frumkvæði og
undir forystu Péturs um og upp úr
Vatnið bjarta Þingvallavatn
– Undraheimur í mótun
Náttúrufræðingurinn 90 (1) bls. 3–4, 2020
MYND Á FORSÍÐU:
Fjósagjá opnast suður í Þingvallavatn við
Leirur, skammt austan við Þingvallabæinn.
Úr gjánni streymir tært og kalt lindavatn, 3–4 °C,
árið um kring. Ljósmynd: Mats Wibe Lund.