Náttúrufræðingurinn - 2020, Page 55
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
55
hverjum hæng og hrygnurnar byggja
val um hrygningu að einhverju leyti á
þessum eiginleikum, þá getur breytileiki
í hreiðurgerð stuðlað að valmökun og
aðskilnaði afbrigða. Sambærileg áhrif
kæmu fram hvort sem val hrygnunnar
er meðfætt, þ.e. arfbundið, eða lært, þ.e.
að hrygnurnar velja hreiður lík þeim
sem þær þekkja eða eru vanar. Byggi
valið á lærðri hegðun er aðskilnaður
þó mun háðari öðrum breytingum. Það
er vert að taka fram að í þessari tilraun
höfðu hrygnurnar einungis möguleika
á að meta hreiðrin úr fjarlægð. Horn-
sílahrygnur taka fjölda ákvarðana við
val á hæng til hrygningar, og líklega er
einn eiginleiki metinn í einu, svo sem
útlit hængsins, biðlunardans, hreiður-
gerð o.s.frv.31 Þeir eiginleikar sem gefa
til kynna fyrsta val, og þar með þau
merki sem endurspegla val hrygnunnar
í þessari rannsókn, segja því hugsan-
lega ekki alla söguna. Það væri áhuga-
vert að rannsaka þætti hreiðurgerðar í
makavali, með því að hrygnunum væri
gefinn kostur á að hrygna frekar en að
byggja mat á vali þeirra á tímanum sem
þær verja nálægt hængunum. Slík til-
raun krefst hins vegar mun meiri sýna-
stærðar og annars konar aðstæður í til-
raunabúrum þar sem það er nær ómögu-
legt að hafa tvo hænga með hreiður í
sama búri vegna þess hve árásargjarnir
þeir eru yfir hrygningartímann.
Þrátt fyrir takmarkað umfang og þar
með skýringarmátt rannsóknarinnar,
einkum vegna lítillar sýnastærðar,
komu fram áhugaverðar niðurstöður.
Staðfestur var breytileiki í hreiðurgerð
hænga af ólíkum hrygningarsvæðum
í Þingvallavatni, meðal annars á milli
hraun- og kransþörungaafbrigða. Það
var hægt að skilgreina þrjár gerðir
af hreiðrum og hreiður hraunhænga
reyndust óvenjuleg að því leyti að þau
voru uppreist. Breytileiki í mökunarat-
ferli var til staðar og tengdist að einhverju
leyti hreiðri og hreiðurgerð. Hængar
frá kransþörungasvæðinu vörðu mun
meiri tíma en hinir hængarnir til að
snyrta hreiðrin og sinna þeim. Þá völdu
hrygnur af hraunsvæðum frekar hænga
með uppreist hreiður. Það bendir til
hlutverks hreiðurs við makaval og jafn-
vel valmökun á milli afbrigða.
ABSTRACT
NEST STRUCTURE AND MATING BEHAVIOUR
OF LAKE ÞINGVALLAVATN STICKLEBACK
Genetically distinct ecotypes of
threespine stickleback have been
described within Lake Þingvallavatn,
South Iceland. As the genetic divergence
is maintained without geographical iso-
lation or significant distance, another
mechanism of reproductive isolation
must be in effect. Previous research has
shown that males from different stick-
leback ecotypes prefer different nest
sites and nest material. Nests are among
the traits that female sticklebacks use
to evaluate potential mates and nest
sites and nest types may therefore both
contribute to reproductive isolation of
ecotypes. In the current study variation
in nest structure and mating behav-
ior was examined for male stickleback
from different habitats within Lake
Þingvallavatn and tested if this variation
contributed to female mate preference.
The results showed that even under
standard laboratory conditions males
from different habitats built different
nests. Specifically, the males from the
lava habitat built unusual up-built nests
and concurrently females from the lava
habitat preferred males with up-built
nests. It can be concluded that nest
type to some extent reflects habitat type
and that nests may contribute to diver-
gence of threespine stickleback within
Lake Þingvallavatn.
3. tafla. Niðurstöður líkans sem kannar hvort val hrygna af hraunsvæði annars vegar og grunnum leirbotni hins vegar tengdist stærð hængs,
biðlunaraferli hans eða hreiðurgerð. Marktæk gildi eru feitletruð. – Results of the linear model examining female preference for male and nest
traits. Significant values are presented in bold type.
Hrygnur af hraunsvæði /
Females from the lava habitat
Hrygnur af gróinni botngerð /
Females from the shallow vegetated habitat
Metið gildi
Estimate
SS
SE
z gildi
z value
p gildi
p value
Metið gildi
Estimate
SS
SE
z gildi
z gildi
p gildi
p gildi
Skurðpunktur / Intercept 11,162 7,193 1,552 0,12 2,916 45,862 0,064 0,949
Meginþáttur 1 / PC 1 -0,057 0,175 -0,33 0,74 3,17 2,975 1,065 0,287
Meginþáttur 2 / PC 2 -0,576 0,197 -2,922 <0,01 -10,084 12,319 -0,819 0,413
Meginþáttur 3 / PC 3 0,284 0,331 0,858 0,39 -3,443 4,175 -0,824 0,41
Meginþáttur 4 / PC 4 0,796 0,434 1,835 0,06 6,877 6,903 0,996 0,319
Stærð hængs / Male size -2,93 1,654 -1,772 0,07 -9,336 11,69 -0,799 0,424
Biðlunaratferli / Courtship intensity 0,387 0,202 1,916 0,05 12,394 6,292 1,97 <0,05