Náttúrufræðingurinn - 2020, Blaðsíða 104
Náttúrufræðingurinn
104
Ritrýnd grein / Peer reviewed
Hlutfall laxaseiða á fyrsta ári við
Alviðru, þar sem bitmýslirfur voru aðal-
fæðan, var nokkuð stöðugt frá 2002 og
hefur öll ár fram til 2016 verið yfir 56%
(57–100%), en í 9 af 14 árum yfir 80% (6.
mynd). Magasýni úr eldri laxaseiðum
eru það fá á hverju ári að ekki er raun-
hæft að greina breytileika á milli ára í
fæðusamsetningunni.
REK OG FÆÐA
Við samanburð á rúmmálshlutfalli
smádýrahópa á reki við Alviðru og í
fæðu laxaseiða á sama stað og sama
tíma árin 2005–2008 má greinilega
sjá að munur var á því sem í boði var í
rekinu og því sem síðan fannst í maga
seiðanna, hvort heldur það voru 0+ eða
1+ og 2+ seiði (7. mynd). Mestur rúm-
málshluti dýra á reki voru lirfur skor-
dýra og voru lirfur bitmýs og rykmýs
í mestu rúmmáli. Einnig voru púpur
rykmýs og tvívængjur (flugur) nokkuð
áberandi. Allnokkur breytileiki var þó
á milli ára í vægi einstakra dýrahópa.
Önnur smádýr á reki voru fyrst og
fremst krabbadýr. Hlutur þeirra var
oftast innan við 10% af rúmmáli í
rekinu en þau fundust ekki í fæðu
seiðanna. Sé litið til fjölda var hlutur
krabbadýra langmestur af dýrum í
reki eða að jafnaði 70,4% (frá 34 til
97%). Vorflugulirfur fundust aðeins í
reksýnum árið 2005 og voru þá 0,1%
af fjölda dýra í reki. Í fæðu 0+ laxa-
seiða voru lirfur bitmýs öll árin yfir
60% af rúmmáli fæðunnar (62–83%).
Hjá eldri og stærri seiðum voru bit-
mýslirfur einnig í mestu rúmmáli flest
árin (34–67%), en vorflugulirfur voru
einnig áberandi (12–46%). Þrátt fyrir
mikinn fjölda krabbadýra á reki fund-
ust þau ekki í fæðu laxaseiðanna.
Marktækt hærra hlutfall bit-
mýslirfna var í maga laxaseiða en í
reksýnunum við Alviðru (Kruskal-
-Wallis; P=0,021, n=4). Á það ekki
síst við um 0+ seiðin (7. mynd). Að
sama skapi var mun lægra hlutfall
rykmýslirfna í maga laxaseiðanna
en mældist í reksýnunum (Kruskal-
Wallis; P<0,001, n=4). Ekki reyndist
marktækur munur fyrir rykmýspúpur
(Kruskal-Wallis; P=0,131, n=4). Eitt
af því eftirtektarverða við þennan
samanburð er hve hátt hlutfall vor-
flugulirfna var í maga laxaseiða,
einkum eldri seiðanna, í samanburði
við það sem veiddist af vorflugulirfum
í reki við Alviðru (Kruskal-Wallis;
P=0,019, n=4).
UMRÆÐA
Smádýr á botni, einkum skor-
dýralirfur, eru þýðingarmikil fæða
laxfiskaseiða í Sogi. Þetta líkist niður-
stöðum rannsókna á fæðu seiða í
öðrum ám á Íslandi.19,22 Lirfur bitmýs
höfðu mest vægi hjá laxaseiðum bæði
við Sakkarhólma og við Alviðru. Þetta
helgast trúlega af því að smádýrasam-
félög á botni Sogs einkennast öðru
fremur af bitmýslirfum, en jafnframt
eru rykmýslirfur áberandi botndýr8
þótt þeirra gætti lítið í fæðunni. Bit-
mýslirfur eru síarar sem nýta sér lífrænt
rek úr stöðuvötnum.4 Í Bugðu í Kjós,
fremur vatnslítilli á (meðalrennsli um
3 m3/s) sem rennur úr Meðalfellsvatni,
voru lirfur bitmýs langþýðingarmesta
fæða laxaseiða næst útfallinu en lirfur
rykmýs voru þýðingarmeiri þegar
neðar kom í ána.19 Þetta er og í sam-
ræmi við það sem fram kom í fæðu-
rannsókn laxfiskaseiða í Úlfarsá16 og í
Elliðaánum18,22 sem báðar eiga upptök
sín í stöðuvötnum. Lirfur vorflugna
voru í allnokkrum mæli í fæðu laxa-
seiða í Sogi. Hlutur þeirra jókst með
stærð og aldri seiða og voru þær þýð-
ingarmesta fæða tveggja ára seiða við
Alviðru. Í Elliðaánum hefur verið bent
á að auk bitmýs hafi vorflugulirfur og
0%
10%
42 24 62
Lax / Salmon Urriði / Trout Bleikja / Charr
Annað / Other items Fullorðin skordýr / Incecta imago Rykmýspúpur / Chironomidae pupae
Vorflugulirfur / Trichoptera larvae Rykmýslirfur / Chironomidae tarvae Bitmýslirfur / Simuliidae larvae
20%
30%
40%
50%
60%
70%
80%
90%
100% A B
Tí
ðn
i s
em
a
ða
lfæ
ða
/
P
ro
po
rt
io
n
as
m
aj
or
fo
od
it
em
0%
10%
N: 343 68 9
Lax / Salmon Urriði / Trout Bleikja / Charr
20%
30%
40%
50%
60%
70%
80%
90%
100%
Tí
ðn
i s
em
a
ða
lfæ
ða
/
P
ro
po
rt
io
n
as
m
aj
or
fo
od
it
em
4. mynd. Hlutfallsleg tíðni (%) laxa-, urriða- og bleikjuseiða í Sogi við Sakkarhólma (A) og Alviðru (B) með viðkomandi fæðugerð sem aðalfæðu
(aðalfæða er sú fæðugerð sem er í mestu magni í maga). Sýnum frá Sakkarhólma var safnað í ágúst til september 1997–2016 og frá Alviðru frá
ágúst til október 1986–2016. Seiðin við Sakkarhólma voru öll 0+ nema þrjú laxaseiði og eitt bleikjuseiði sem voru 1+. Seiðin við Alviðru voru frá
0+–2+. Neðan hverrar súlu er skráður fjöldi seiða hverrar fisktegundar. – Frequency of occurrence (%) of salmonid juveniles by age in River Sog
at Sakkarhólmi (A) and Alviðra with food items as main food (food item that is in greatest volume in stomach). Based on fish sampled at Sakk-
arhólmi in August to September 1997–2016 and at Alviðra in 1986–2016. All juveniles from Sakkarhólmi, except three salmon and one charr,
were age 0+. Juveniles from Alviðra were 0–2+. Numbers of fish inspected for food analysis are shown below bars.