Náttúrufræðingurinn - 2020, Síða 13
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
13
einhverja ófegurstu brú sem um getur.
Árið 2002 lögðu þingmennirnir Mörður
Árnason og Karl V. Matthíasson fram
þingsályktunartillögu um endurheimt
Drekkingarhyls í Almannagjá og vildu
láta kanna hvernig hylurinn gæti endur-
heimt sinn forna svip.29 Tillagan hlaut
ekki samþykki alþingis þótt í raun væri
ekki gert ráð fyrir öðru en könnun á því
sem gera þyrfti til að hylurinn fengi sitt
gamla útlit og hvað það kostaði. Baldur
Þór Þorvaldsson, fyrrverandi starfs-
maður Vegagerðarinnar og brúarsögu-
sérfræðingur, kannaði þetta mál hins
vegar á eigin spýtur.30 Hann telur lýs-
ingu Björns Th. mjög orðum aukna og
að fullyrðing hans um að berghaftið hafi
verið sprengt og lækkað hafi ekki við
rök að styðjast. Hins vegar er hann sam-
mála því að brúin sé ekkert augnayndi
og eigi að hverfa í núverandi mynd en
léttbyggðari brú og aðkeyrsla að koma í
staðinn. Jafnframt eigi að hreinsa burt
grjót og fyllingarefni úr hylnum og færa
hann þannig í því sem næst upprunalegt
horf. Þessar tillögur virðast bæði þarfar
og góðar. Því má bæta við að Þingvellir
komust á heimsminjaskrá UNESCO
árið 2004. Sérfræðinganefnd stofn-
unarinnar setti raunar nokkur skilyrði
og benti á atriði sem unnið skyldi að.
Meðal þeirra var að létt brú skyldi koma
á Drekkingarhyl í stað núverandi brúar.
Þessu hefur ekki verið sinnt sem skyldi.
VIRKJUN ÖXARÁR
Jón Guðmundsson, bóndi á Brúsa-
stöðum, keypti Hótel Valhöll árið 1919.
Þá stóð hótelið austan Öxarár á svoköll-
uðum Köstulum. Þar kom hann upp
raflýsingu árið 1927 og framleiddi raf-
magnið með dísilvél til að byrja með.31,32
Árið 1929 var gamla hótelbyggingin
tekin niður og endurbyggð vestan
Öxarár þar sem hótelið stóð síðan allt til
þess að það brann sumarið 2009. Á sama
tíma og þessar framkvæmdir stóðu yfir
íhugaði Jón að virkja Öxará enda var þá
verið að reisa litlar vatnsaflsvirkjanir
víða um land. Í umræðum um friðun
Þingvalla á alþingi 1928 kemur fram að
þá hafði Jón farið fram á leyfi til virkj-
unar.33 Ljóst er af umræðunum að þing-
mönnum leist ekki á virkjun við Öxarár-
foss og töldu að hún myndi spilla helgi
staðarins og fegurð. Friðun Þingvalla
var síðan samþykkt samhliða stofnun
Þjóðgarðsins. Ekki er ljóst hvort Jón á
Brúsastöðum hafði virkjun við Öxarár-
foss einhvern tíma í huga. Þegar hann
hóf virkjunarframkvæmdir 1932 var það
í hans eigin landi, ofan við Brúsastaði þar
sem Öxará fellur í flúðum og strengjum
niður á jafnlendið.34 Þarna byggði hann
inntaksstíflu, lagði aðfærslupípur, reisti
stöðvarhús, kom upp raflínu og brúaði
meira að segja ána gegnt stöðvarhúsinu
(6. mynd). Virkjuð fallhæð var 13 m og
lengd pípu um 180 m. Rafallinn var 37
kw rakstraumsrafall frá ASEA í Svíþjóð
en vatnshjólið var smíðað í Landssmiðj-
unni. Ekki hafa fundist nein mæligögn
um rennsli árinnar frá þessum tíma en
vafalítið hafa menn þó reynt að meta
það þegar lagt var á ráðin um vélar og
búnað. Þetta var rennslisvirkjun án
miðlunar og hafði lítil sem engin áhrif
á rennsli Öxarár. Rafmagnið var leitt til
Brúsastaða, Hótel Valhallar og í Þing-
vallabæinn. Nokkru síðar bættust sum-
arbústaðir í grenndinni við og einnig
lét Jón lýsa upp Þingvallakirkju og fékk
hún rafmagnið endurgjaldslaust. Raf-
línan til Þingvalla var 2,6 km að lengd.
Þetta var mikil framkvæmd og dýr fyrir
einstakling, kostaði 25.000 kr. á verðlagi
ársins 1932. Margt var því af nokkrum
vanefnum gert og reksturinn gekk brö-
sótt til að byrja með. Línan gat ekki flutt
nema takmarkaða orku og spennufall var
oft óhóflegt vegna þess hve grönn línan
var. Auk þess urðu ýmsar truflanir við
stífluna af völdum framburðar og kraps
í ánni. Jón vann því stöðugt að endur-
bótum og hafði stækkun í huga. Árið
1942 endurnýjaði hann stífluinntakið og
lét setja gildari víra í línuna og varð það
til mikilla bóta. Með vaxandi umsvifum
á Þingvöllum dugði þetta rafmagn ekki
og fyrir lýðveldishátíðina 1944 var sett
dísilrafstöð við Valhöll og notuð sam-
hliða vatnsaflsstöðinni á sumrin fram
til 1946. Þá var rekstri virkjunarinnar
hætt en rafmagnið alfarið framleitt
með olíu á vegum hlutafélags sem ann-
aðist rekstur Valhallar frá 1944 til 1964
þegar Þingvellir fengu loks rafmagn
6. mynd. Rústir Öxarárvirkjunar sem Jón Guð-
mundsson, bóndi á Brúsastöðum byggði árið
1932. – The ruins of the small power station in
Öxará river built by the farmer at Brúsastaðir in
the year 1932. Ljósm./Photo: Árni Hjartarson.