Náttúrufræðingurinn - 2020, Qupperneq 83
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
83
Vatnshiti/Lake T (°C) — Stöð / Station NK2
4 m
8 m
16 m
24 m
32 m
40 m
2 4 6 8 10 12 14
Va
tn
sh
iti
/L
ak
e
T
(°
C
) —
S
tö
ð
/ S
ta
tio
n
LV
2
2
4
6
8
10
12
14
var ákveðið skjóta inn í þennan mánuð
útreiknuðum gildum sem byggðust á
meðaltali allra mælinga í janúar og mars
1963. Útreiknaða meðaltalið fyrir febr-
úar var 1,8°C (n = 248) og var alls bætt
við 112 slíkum gildum fyrir þann mánuð
(28 dagar, 4 mælingar á dag). Meðal-
vatnshiti í janúar 1963 var 1,6°C (n =
124) og 2,2°C í mars það ár (n= 124). Í
samanburði ársmeðalvatnshita, sem
nær sem fyrr segir til 47 ára, liggja til
grundvallar alls 304.678 mælingar og
17.153 dagsmeðaltöl.
Til að ganga úr skugga um notagildi
vatnshitamælinga Landsvirkjunar við
Efra-Sog sem metil á vatnshita úti í
Þingvallavatni voru mælingar í aðvatni
(aðrennslisvatni) á stöð LV2 bornar
saman við mælingar sem gerðar voru
samtímis á vegum Náttúrufræðistofu
Kópavogs í vatnsbol Þingvallavatns.
Vatnshitamælingar Náttúrufræðistofu
Kópavogs úti í vatnsbolnum hófust árið
2007 og fara þær fram á fastri mælistöð
úti fyrir miðju vatninu (stöð NK2, 1.
mynd). Fram til maí 2010 var mælt með
handvirkum fjölþáttamæli í vettvangs-
ferðum en frá og með júní 2010 hafa
mælingar verið gerðar með síritandi
mælum á 4–10 mismunandi dýpum.16,25,26
Síritarnir hafa skráð hitann í vatns-
bolnum á einnar klukkustundar fresti,
frá 4 m og niður á 40 m dýpi, en botndýpi
á stöðinni er um 43 m. Í umfjölluninni
hér er horft til áranna 2011–2016 og valið
tímabilið frá 1. júní til 30. október. Mæl-
ingar sýna að vatnshitinn í vatnsbolnum
er meira eða minna eins frá yfirborði og
niður á botn frá því í byrjun nóvember
og fram undir júníbyrjun.16,26–29
Við samanburð mælinganna voru
notuð gögn úr síritunum þar sem þau
eru mun ýtarlegri en úr fjölþáttamæl-
inum. Þá er tíðni síritamælinganna álíka
og á stöð LV2 í aðvatninu, skráning á
klukkustundar fresti. Við samanburðinn
var beitt línulegum aðhvarfsgreiningum
á dagsmeðaltöl vatnshita í aðvatninu og
úr síritum á stöð NK2 af 4 m, 8 m, 16
m, 24 m, 32 m og 40 m dýpi. Alls tóku
síritagögnin til 596 sólarhringsmeðal-
tala fyrir hvert dýpi á tímabilunum 5.6.–
24.10. 2012, 6.6.–14.10. 2013, 9.5.–24.10.
2014 og 23.5.–25.10. 2015.
Síritarnir eru af gerðinni TidbiT-v-
2-Temp (Part # UTBI-001) frá Onset
Computer Corporation og mæla þeir
með 0,2°C nákvæmni.16,26
ÍSADAGAR Á ÞINGVALLAVATNS
Gögn um ísalagnir, ísabrot og
ísadaga á Þingvallavatni taka til áranna
1974–2017 og eru sótt í þrjár heimildir
eftir mismunandi tímabilum.30–33 Með
ísadögum er átt við fjölda daga sem
allt Þingvallavatn hefur verið ísi lagt,
með landfastan ís á miðju vatni þvert
yfir að sunnan og norðan Sandeyjar,
en vakir við kaldavermsl ásamt opnu
suðvestan Nesjaeyjar.32
LOFTHITI OG VINDSTYRKUR
Gögn um lofthita voru fengin frá
Veðurstofu Íslands og taka til tímabils-
ins 1962–2016. Ekki eru til samfelld
gögn frá einni og sömu veðurstöðinni
á vatnasviði Þingvallavatns fyrir allt
tímabilið sem vatnshitagögnin ná til og
voru því notaðar mælingar frá þremur
veðurstöðvum sem ná yfir mismunandi
tímabil (1. mynd), Þingvöllum (stöð nr.
945, 1962–1982), Heiðarbæ (stöð nr. 949,
1984–1991) og Leirum (stöð nr. 1596,
1995–2016). Ársmeðaltöl lofthita voru
reiknuð út frá mánaðarmeðaltölum við-
komandi árs og aðeins notuð gögn frá
þeim árum þegar mælt var alla mánuði
ársins. Árin 1982–1983, 1986, 1991, 1996
og 2013 voru ekki fyrir hendi mælingar
alla 12 mánuðina. Við þetta má bæta
að engin gögn um lofthita voru tiltæk
frá veðurstöðvunum þremur fyrir árin
1992–1995. Gögn með mánaðarmeðal-
tölum frá veðurstöðvum nr. 1, 945 og
949 voru sótt á heimasíðu Veðurstof-
unnar34 en gögn frá Leirum voru sér-
unnin hjá Veðurstofunni.35
Til að athuga nánar tengsl vindstyrks
og vatnshita í vatnsbol Þingvallavatns,
sér í lagi hvað varðar þróun lóðréttra
hitaskila, var stuðst við vindmælingar
frá veðurstöðinni á Leirum og notast við
sólarhringsmeðaltöl í vindstyrk (m/s),
mesta vindhraða (hæsta 10 mín. gildi
á síðustu klst., m/s) og mestu hviðu
(hæsta 3–5 sek.-gildi á síðustu klst.).36
Tengsl vinds og vatnshita voru könnuð á
2. mynd. Samtímamælingar á vatnshita í aðvatni á stöð LV2 og á
sex mismunandi dýpum á stöð NK2 í vatnsbol Þingvallavatns. – Re-
lationship between simultaneous temperature recordings at station
LV2 and six different depths at pelagic station NK2 in Lake Þingvalla-
vatn. Based on 596 daily means (1 record every hour) during early June
and late October 2012–2015.