Náttúrufræðingurinn - 2020, Síða 33
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
33
-1,5 1,51. PCA-ás / PCA Axis 1 (λ = 0,552)
-0,6
1,0
2.
P
C
A
-á
s
/ P
C
A
A
xi
s
2
(λ
=
0
,1
71
)
2013
-1,0 1,51. PCA-ás / PCA Axis 1 (λ = 0,509)
-0,6
1,0
2.
P
C
A
-á
s
/ P
C
A
A
xi
s
2
(λ
=
0
,2
20
)
2012
maí – grunnt maí – djúpt júlí – grunnt júlí – djúpt ágúst – grunnt ágúst – djúpt október – grunnt október – djúpt
13. mynd. Á leið til fyrstu sýnatöku að vori með margvíslegan búnað. Þar á meðal eru legufæri til að marka fastan sýnatökupunkt á stöð 3.
– Approaching sampling station in spring. Ljósm./Photo: Finnur Ingimarsson.
LOKAORÐ
Niðurstöður vöktunarinnar gefa
til kynna að svifdýrasamfélög í Þing-
vallavatni séu háð flóknu samspili
hita, dýpis og næringarefna. Myndun
hitaskila á sumrin stuðlar að því að
vatnsmassinn ofan skilanna einangr-
ast frá neðri hluta vatnsins. Allajafna
klárast þá næringarefnin í efra laginu
sem dregur úr framleiðslu þörunga þar.
Kemur það meðal annars þannig fram
að sjóndýpi mælist meira í vatninu yfir
sumarmánuðina en að vori og hausti.
Sterkari hitaskil í kjölfar loftslagshlýn-
unar gætu því stuðlað að því að halda
við hinni tæru og bláu ásýnd vatnsins að
sumri, að því tilskildu að auknir vindar
komi ekki í veg fyrir að hitaskil nái að
myndast. Næringarefni berast fyrst og
fremst í Þingvallavatn með hinu mikla
magni grunnvatns sem streymir inn um
lindirnar í því norðanverðu.5 Einnig er
nokkur loftborin ákoma með úrkomu á
vatnið, svo og ákoma tengd starfsemi í
nálægð við vatnið, svo sem vinnslu jarð-
varma, landbúnaði og ferðamennsku.32
Á hlýjum sumrum þegar hitaskil eru
til staðar má ætla að kalt og eðlisþungt
innstreymið úr lindunum leiti með botni
niður í dýpra lag vatnsins og blandist
að mjög litlu leyti við efra lagið sem er
hlýrra og eðlisléttara. Vatnshitamæl-
ingar sýna að oft eru hitaskilin það sterk
að allnokkurn vind þarf til að hræra upp
í vatninu4 og skilin rofna sjaldan að fullu
fyrr en að hausti þegar þau brotna upp
vegna kólnunar efri laganna.
Rannsóknir á áhrifum hnattrænnar
hlýnunar á norðurslóðum eru mjög í
deiglunni um þessar mundir og bein-
ast meðal annars að því hver áhrifin
eru og verða á stöðuvötn á norðlægum
breiddargráðum. Í þeim hópi hefur
Þingvallavatn sérstöðu vegna landmót-
unar, vatnafræðilegrar gerðar og þró-
unarfræðilegra undra á borð við bleikju-
gerðirnar fjórar. Því er afar mikilvægt
að vakta vatnsgæði og vistkerfi vatnsins
og á það við um öll búsvæði þess.
SUMMARY
MONITORING OF ZOOPLANKTON IN
LAKE ÞINGVALLAVATN 2007–2017
Monitoring of water quality and zoo-
plankton has been conducted in Lake
Þingvallavatn since 2007. Here we pres-
ent data on the zooplankton commu-
nity during a ten-year period. In total
23 groups of zooplankton were identi-
fied, 8 taxa of Crustacea and 15 taxa of
Rotifera. All taxa have previously been
reported in the lake with similar dom-
inance of species as in studies from the
eighties of the last century, but with
notable exceptions. The most dominant
taxa are Daphnia galeata, Leptodiapto-
mus sp., Cyclops spp., Conochilus unicor-
nis, Filinia terminalis, Keratella cochle-
aris and Polyarthra sp. Irregular density
fluctuations were observed with indica-
tions of species shift from earlier times,
i.e. of Leptodiaptomus sp. increasing in
density at the expense of Cyclops spp.
There is also an apparent decline among
rotifers, with F. terminals on the increase
but Keratella hiemalis, Collotheca muta-
bilis and Kellicottia longispina on the
decrease. The environmental variables
that explained most of the variance in
the zooplankton data were water tem-
perature, chlorophyll-a concentrations
and depth. Concerns have been raised
regarding the effects of lake warming,
due to global warming, and increase in
airborne nitrogen load on the biota and
pristine blue colour of Lake Þingvalla-
vatn. Results of the monitoring project
indicate that the zooplankton commu-
nity in Lake Þingvallavatn might fluc-
tuate more with enhanced lake warm-
ing and thermal stratification. Thermal
stratification directly affects the depth
of primary production in the pelagic
zone during summer and therefore
determines whether the lake stays pris-
tine blue or not.