Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2020, Síða 17

Náttúrufræðingurinn - 2020, Síða 17
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags 17 50 km A A’ B C D E F INNGANGUR Í inngangi að bók um rannsóknir á lífríki Þingvallavatns sem Pétur M. Jónasson stjórnaði og ritstýrði greindi hann frá þeirri viðteknu vitneskju að vötn á Íslandi sem ættu uppruna sinn í hraunum væru rík að lífi og fiski.1 Grunn- vatn er það vatn sem finna má neðan- jarðar og kemur upp á yfirborð í lindum og myndar þá yfirborðsvatn. Á þessum tíma virðist engan hafa órað fyrir að í grunnvatni hraunanna þrifist líf, eða allt þar til grunnvatnsmarflær fundust í því um aldamótin síðustu. Enn í dag stoppa leiðsögumenn við uppsprettur á bökkum Þingvallavatns til að gefa ferðamönnum tækifæri á að smakka hið hreina vatn sem er talið eiga uppruna sinn í Langjökli. Ljóst er að vatnið er gott og tært, en í því má þó finna ýmsar lífverur. Um síðustu aldamót fundust þar grunnvatnsmarflærnar íslandsmar- fló (Crangonyx islandicus)2 (1. mynd) og þingvallamarfló (Crymostygius thing- vallensis),3 tvær einlendar tegundir sem nú er talið að séu elstu lífverur lands- ins, og hafi verið hér frá því að Ísland myndaðist.4,5 Tegundirnar fundust við rafveiðar, þar sem vægum rafstraumi er beitt til að lama marflær, rafstraumur- inn berst nokkra tugi sentimetra inn í hraun við uppsprettur linda og dugar til þess að marflærnar fljóta út með vatns- straumnum. Önnur aðferð sem hefur verið notuð við að safna flónum byggist á að hólkar eru reknir í gegnum hraun niður í grunnvatnið undir þeim og vatni síðan dælt upp og hellt í gegnum síur þar sem marflærnar safnast í. Grunnvatnsmarflærnar tilheyra yfir- ætt grunnvatnsmarflóa, Crangonyct- oidea, sem er nær eingöngu bundin við grunnvatn og sýna þær öll einkenni þess að hafa lifað lengi í grunnvatni, meðal annars hafa augun glatast. Ólíkar ættir innan Crangonyctoidea eru bundnar við mismunandi heimsálfur og virðast þær hafa aðgreinst með uppskiptingu Pangeu fyrir um 175 milljónum ára,6 en dreifigeta þessara grunnvatnstegunda er almennt takmörkuð.7 Ættin sem íslandsmarfló tilheyrir, Crangonyctidea, finnst hins vegar beggja megin Norður- Atlantshafs, þó aðallega í Norður-Am- eríku. Þingvallamarflóin myndar hins vegar nýja áður óþekkta ætt.8,9 Upphaf Norður-Atlantshafs er rakið til þess tíma að Evrasíuflekinn skildist frá Norður- Ameríkuflekanum fyrir um 54 milljónum ára, en landbrú tengdi flekana allt þar til fyrir um 33 til 25 milljónum ára.10 Athug- anir á dreifingu steingervinga benda til að styttri tími sé liðinn síðan landbrúin rofnaði að fullu, eða undir 10 milljónum ára.11,12 Þegar landbrúin rofnaði beggja megin Frum-Íslands varð til eyja og er talið að tilvera hennar hafi byggst á mött- ulstróknum sem ennþá er undir Íslandi.13 Í grunnvatnskerfum þessa forvera Íslands virðast grunnvatnsmarflærnar hafa þrifist og náð að lifa af með því að nema stöðugt land í grunnvatni nýrra berglaga þegar eldri jarðlög sukku í sæ vestanlands og austan. Saga grunnvatnsmarflónna á Íslandi er ekki eingöngu áhugaverð út frá tengingu þeirra við landrek. Frá upphafi ísaldar hefur landið hvað eftir annað verið hulið jökli14 og því ljóst að flærnar hafa þurft að lifa af í grunnvatni undir ísþekjunni, mögulega í sprungum við flekaskilin. Íslandsmarflóin hefur fund- ist víða í uppsprettum í hraunasvæðum á gosbeltunum sem tengjast rekbelti Íslands (2. mynd), frá Hrauni í Ölfusi norður á Kjöl, við Heklu, frá Eldhrauni í Skaftafellssýslu norður í Aðaldal, Núpssveit og Melrakkasléttu,4,8 en ekki í lindum í hraunum á Snæfellsnesi eða í öðru grunnvatni fyrir utan rekbeltið. Þingvallamarflóin er bæði mun stærri (um 2 cm) og sjaldgæfari en íslandsmar- flóin, fyrir utan að hafa fundist við Þing- vallavatn þá hefur hún fundist í maga tveggja bleikja, einni frá Herðubreiða- lindum8 og nýlega í annarri frá Skarðslæk í Landsveit (Agnes-Katharina Kreiling o.fl., í undirbúningi, 3. mynd). Athug- anir á breytileika í hvatberaerfðaefni íslandsmarflóarinnar sýna að á Íslandi eru fimm vel aðgreindir hópar og fylgir aðgreiningin vel fjarlægðum milli staða. Aðgreining hvatberaerfðaefnisins bendir til að hóparnir hafa verið aðskildir í 4,8 milljónir ára og er mesta aðgreiningin milli hópsins í Norður-Þingeyjarsýslu og hinna hópanna.4 Athugun á erfða- mörkum í kjarna gefur hins vegar aðeins aðra mynd og bendir til þess að fyrsta aðgreiningin hafi átt sér stað á milli sunnlenskra og norðlenskra hópa.15,16 Innan þeirra tveggja svæða hefur síðan orðið frekari aðgreining milli hópa í vestri og austri. Hin ólíku mynstur sem fást með þessum erfðamörkum má skýra með blöndun milli hópa á Norðurlandi. 2. mynd. Fundarstaðir íslandsmarflóarinnar Crango- nyx islandicus á Íslandi (·) og megin-hvatberastofnar (A-F).4 – Sampling location of Crangonyx islandicus (·) and main mitochondrial lineages (A–F).4 Ritrýnd grein / Peer reviewed Náttúrufræðingurinn 90 (1), bls. 16–22, 2020
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.