Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2020, Síða 68

Náttúrufræðingurinn - 2020, Síða 68
Náttúrufræðingurinn 68 500 400 300 200 100 0 600 500 400 300 200 100 0 200 150 100 50 0 300 250 200 100 150 50 0 70 50 60 40 30 10 20 0 35 25 30 20 15 5 10 0 100 80 60 40 20 0 120 100 80 60 40 20 0 35 30 25 20 15 10 5 0 10,0 9,5 9,0 8,5 8,0 7,5 7,0 20 15 10 5 0 600 500 400 300 200 0 100 ja n. 2 00 7 ja n. 2 00 8 ja n. 2 00 9 ja n. 2 01 0 ja n. 2 01 1 ja n. 2 01 2 ja n. 2 01 3 ja n. 2 01 4 ja n. 2 01 5 ja n. 2 00 7 ja n. 2 00 8 ja n. 2 00 9 ja n. 2 01 0 ja n. 2 01 1 ja n. 2 01 2 ja n. 2 01 3 ja n. 2 01 4 ja n. 2 01 5 ja n. 2 00 7 ja n. 2 00 8 ja n. 2 00 9 ja n. 2 01 0 ja n. 2 01 1 ja n. 2 01 2 ja n. 2 01 3 ja n. 2 01 4 ja n. 2 01 5 ja n. 2 00 7 ja n. 2 00 8 ja n. 2 00 9 ja n. 2 01 0 ja n. 2 01 1 ja n. 2 01 2 ja n. 2 01 3 ja n. 2 01 4 ja n. 2 01 5 N a (μ m ól /l) B as av irk ni (μ eq /l) C l ( μm ól /l) S iO 2 ( μm ól /l) M g (μ m ól /l) S O 4 ( μm ól /l) Le ið ni (μ S /c m ) C a (μ m ól /l) S -t ot al (μ m ól /l) pH K (μ m ól /l) D IC (μ m ól /l) Steingrímsstöð Silfra Vellankatla Á tímabilinu 1962 til 2011 hefur Þingvallavatn hlýnað og virðist hitabú- skapurinn fylgja árlegum meðallofthita á Íslandi. Á sama tíma hefur ísadögum á vatninu fækkað.11,12 Leysing efna úr bergi við veðrun er háð lofthita og úrkomu.13–15 Til dæmis jókst árlegur efnaframburður leysts kísils í straumvötnum á Austur- landi á tímabilinu 1962–2004 um 5 til 16 prósent við hverja einnar gráðu hækkun árlegs meðallofthita.14 Þessi áhrif loft- hita á veðrun geta ekki skýrt sveifluna í styrk kísils í útfalli Þingvallavatns og Sogs, þar sem styrkur leysts kísils í lindarvatninu hefur verið stöðugur (3. og 4. mynd). Hugsanlega er þessi sveiflukenndi styrkur kísils í útfallinu tilkominn vegna mismikillar virkni kísilþörunga í takt við breytingar á ísa- lögum á Þingvallavatni. Ís takmarkar birtu í yfirborðslögum stöðuvatna og minnkar þar með ljóstillífun í vötnum. Á tímabilum þegar ísalög eru takmörkuð á Þingvallavatni ætti upptaka leysts kísils að vera meiri vegna meiri kísilþörunga- virkni. Það ætti að minnka styrk kísils í vatninu, að því gefnu að önnur næring- arefni séu í nægum styrk. Að sama skapi ætti kísilþörungavirkni og upptaka kís- ils úr vatninu að minnka á tímabilum þegar ísalög eru meiri. Einnig er líklegt að mismunandi virkni sólar og áhrif hennar á loftslag á jörðinni hafi áhrif á ljóstillífun þar sem ljóstillífun stjórnast fyrst og fremst af því ljósi sem í boði er. Samband á milli fjölda sólbletta16 og meðalstyrks kísils í Þingvallavatni er sýnt á 5. mynd. Sjá má að fylgnin er sterk á milli þessara tveggja þátta (R2=0,72) og því er ekki ólíklegt að breytileiki kísilstyrks í Þingvallavatni stafi af áhrifum sólblettavirkni á vöxt kísilþörunga og þar með á upptöku kís- ils úr vatninu. 5. mynd sýnir að styrkur leysts kísils í vatninu minnkar með auk- inni tíðni sólbletta, og stafar það líklega af því að kísilþörungarnir taki upp meiri kísil úr vatninu þegar sólblettavirkni er mikil. Ekki var neitt samband á milli fjölda árlegra sólbletta og meðalárshita í Reykjavík eða á Þingvöllum.17 Rann- sóknir hafa sýnt öfugt samband á milli sólblettavirkni og magns geimgeisla sem ná til jarðar, og gæti það haft áhrif á skýjafar á jörðinni.18 Fylgnin á milli þessara þátta er þó ekki sterk og við seinni rannsóknir hefur komið fram önnur skýring á sambandi sólbletta- virkni og skýjafars, þ.e. tölfræðilega marktækt samband á milli inngeislunar frá sólu og myndunar lágskýja19,20 sem byggist á magni útfjólublárra geisla í heiðhvolfinu. Samband árlegs fjölda sól- bletta og leysts kísils verður skýrt frekar hér á eftir í kaflanum um næringarefni. STYRKUR LEYSTRA SNEFILEFNA Eins og sjá má á 6. mynd var styrkur margra snefilefna svipaður í lindunum og í útfallinu. Mörg þeirra efna voru einnig í mjög litlum styrk og nálægt greiningarmörkum. Styrkur áls (Al) og vanadíums (V) var meiri í lindunum en í útfallinu sem þýðir að efnin hvarfast og falla úr lausn á dvalartíma vatns- ins, vegna ólífrænna og/eða lífrænna ferla. Styrkur járns (Fe), strontíums (Sr), mangans (Mn), mólýbdens (Mo) og títans (Ti) var meiri í útfallinu en í lindunum og merkir það að styrkur þeirra eykst á dvalartíma vatnsins. 3. mynd. Niðurstöður mælinga á leiðni og pH-gildi og greininga á styrk uppleystra aðalefna í lindunum Silfru og Vellankötlu og í útfall- inu við Steingrímsstöð á árunum 2007 til 2014. – Measured conductivity and pH and the concentration of dissolved major constitu- ents determined in the springs Silfra and Vellankatla and in the outlet of Lake Þingvallavatn. Basavirkni: alkalinity; Leiðni: conductivity.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.