Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 2020, Side 70

Náttúrufræðingurinn - 2020, Side 70
Náttúrufræðingurinn 70 1,6 1,2 0,8 0,4 0,0 2,0 1,6 1,2 0,8 0,4 0,0 4,0 3,0 2,0 1,0 0,0 20 15 10 5 0 0,08 0,06 0,02 0,04 0,00 4,0 3,0 2,0 1,0 0 0,40 0,30 0,20 0,10 0,00 0,5 0,4 0,3 0,2 0,1 0,0 0,05 0,04 0,03 0,02 0,01 0,00 0,05 0,04 0,03 0,02 0,01 0,00 2,0 1,5 1,0 0,5 0,0 0,6 0,5 0,4 0,3 0,2 0,1 0,0 60 50 40 30 20 0 10 0,025 0,020 0,015 0,010 0,005 0,000 5,0 4,0 3,0 2,0 1,0 0,0 0,20 0,15 0,10 0,05 0,00 ja n. 2 00 7 ja n. 2 00 8 ja n. 2 00 9 ja n. 2 01 0 ja n. 2 01 1 ja n. 2 01 2 ja n. 2 01 3 ja n. 2 01 4 ja n. 2 01 5 ja n. 2 00 7 ja n. 2 00 8 ja n. 2 00 9 ja n. 2 01 0 ja n. 2 01 1 ja n. 2 01 2 ja n. 2 01 3 ja n. 2 01 4 ja n. 2 01 5 ja n. 2 00 7 ja n. 2 00 8 ja n. 2 00 9 ja n. 2 01 0 ja n. 2 01 1 ja n. 2 01 2 ja n. 2 01 3 ja n. 2 01 4 ja n. 2 01 5 ja n. 2 00 7 ja n. 2 00 8 ja n. 2 00 9 ja n. 2 01 0 ja n. 2 01 1 ja n. 2 01 2 ja n. 2 01 3 ja n. 2 01 4 ja n. 2 01 5 B (μ m ól /l) M o (n m ól /l) C u (n m ól /l) S r (μ m ól /l) A s (n m ól /l) C o (n m ól /l) Fe (μ m ól /l) M n (μ m ól /l) C d (n m ól /l) A l ( μm ól /l) V (μ m ól /l) C r (n m ól /l) Ti (n m ól /l) P b (n m ól /l) N i ( nm ól /l) H g (μ m ól /l) Steingrímsstöð Silfra Vellankatla bands fosfórs, PO4. Mismunur á styrk P-total og PO4 gefur vísbendingu um styrk leysts lífræns fosfórs. Styrkur þessara efnasambanda er sýndur í viðauka. Heildarstyrkur leysts ólífræns köfn- unarefnis (DIN, e. dissolved inorganic nitrogen) var meiri á veturna en á öðrum árstíðum. Heildarstyrkur leysts lífræns köfnunarefnis (DON, e. dissolved organic nitrogen) jókst smám saman þegar leið á árið og náði hámarki að hausti. Styrkur ólífræns köfnunarefnis var alltaf meiri en lífræns köfnunarefnis í Vellankötlu og Silfru, en vegna upptöku á ólífrænu köfnunarefni vegna ljóstillífunar breytt- ust þessi hlutföll á dvalartíma vatnsins frá lindunum að útfallinu (1. viðauki). Heildarstyrkur DIN í útfallinu var 72% af DON á veturna og minnkaði niður í 24% á haustin (DIN/DON, 1. viðauki). Heildarstyrkur leysts fosfórs (P-total) minnkaði jafnt og þétt frá vetri til hausts og bendir það til stöðugrar upptöku fos- fórs á meðan birtustig er nægilegt. Þörungar í vatni eru þurftarfrekari á köfnunarefnissambönd en á fosfór og þurfa 16 mól af köfnunarefni á móti 1 móli af fosfór.25 Í innflæði og útfalli Þing- vallavatns er mólhlutfall leysts köfnun- arefnis og fosfórs (N/P) lægra en 16/1 (8. mynd) sem þýðir að köfnunarefni er tak- markandi fyrir vöxt ljóstillífandi lífvera, líkt og þekkist um næringarefnabúskap í gosbeltinu á Íslandi.26–28 Það stafar af því að fosfór er bergættað efni sem leys- ist hratt úr ungu glerjuðu basalti á gos- beltunum, en köfnunarefni berst inn á vatnasviðin með úrkomu. Þetta veldur því að köfnunarefni (aðallega NO3 sem er aðgengilegast ljóstillífandi lífverum) gengur til þurrðar í vatninu vegna nær- ingarefnanáms ljóstillífandi lífvera. Vöxtur köfnunarefnisbindandi baktería er hins vegar óháður leystu köfnunarefni í vatni og því geta þær þrifist þótt leyst köfnunarefni hafi gengið til þurrðar, að því gefnu að fosfór sé til staðar ásamt nauðsynlegum snefilefnum, svo sem járni, mólýbdeni og vanadíumi. Styrkur NO3 minnkar verulega á dvalartíma vatnsins í Þingvallavatni sökum upptöku ljóstillífandi lífvera (8. mynd). Styrkur NO2 og NH4 virðist ekki breytast á dvalartíma vatnsins, en styrkur NO2 var oftast við greiningarmörk í útfall- inu. Meðalstyrkur NH4 var um sjö sinnum minni en meðalstyrkur NO3 í lindunum en tvöfalt til þrefalt meiri en meðalstyrkur NO3 í útfallinu. Rannsókn sem gerð var í Mývatni bendir til þess að innflæði köfn- unarefnis um botn sé fyrst og fremst á formi NH4 sökum rotnunar lífrænna leifa.29 Þar sem köfnunarefni (NO3) er það næringarefni sem takmarkar ljóstillífun í Þingvallavatni og minnkar styrkur þess sökum ljóstillífunar niður að greiningar- mörkum frá því að vatnið streymir úr lindunum þar til það fer um útfallið. Því er ekki hægt að nota styrk NO3 í útfalli Þingvallavatns til að meta breytingar á innflæði og ákomu NO3 í vatnið. Styrkaukning köfnunarefnis í vatn- inu, svo sem sökum mengunar, eykur frumframleiðni í Þingvallavatni með tilheyrandi breytingum á lífríkinu.30,31 Styrkur köfnunarefnis í innstreymi Þingvallavatns þyrfti að aukast um það bil þrefalt til að jafna Redfield-hlutfallið (brotna línan á 8. mynd) og myndi sú aukning valda aukinni ljóstillífun í vatn- inu. Aukning köfnunarefnis fram yfir það myndi ekki auka ljóstillífun í vatn- inu þar sem fosfór yrði þá takmarkandi næringarefni fyrir ljóstillífun. Aukin virkni blágrænubaktería, sem binda köfnunarefni úr andrúmslofti, myndi hafa sömu afleiðingar og aukið inn- streymi köfnunarefnis með lindarvatni og aukin ákoma þess með úrkomu. Mynd 8C sýnir á einfaldaðan hátt hvernig styrkur ólífræns köfnunarefnis og fosfórs þróast í Þingvallavatni frá innflæði til útfalls miðað við veginn meðalstyrk næringarefnanna í Silfru og Vellankötlu ásamt meðalstyrk þeirra í útfallinu við Steingrímsstöð. Miðað er við styrk efnanna í útfallinu við Stein- grímsstöð og er upphafsstyrkur þeirra reiknaður út frá rennslisvegnum meðal- styrk efnanna í lindum, og gert ráð fyrir að 60% vatnsins séu komin úr Silfru og 40% úr Vellankötlu. Hér verður mynd 8C útskýrð í þremur liðum sem vísa til númeranna á myndinni: 1) Styrkur nær- ingarefnanna minnkar vegna ljóstillíf- unar eftir að lindarvatnið streymir inn í Þingvallavatn. Styrkminnkun er í hlutföll- unum 16/1 þar til allt ólífrænt leyst N er uppurið. 2) Styrkur N eykst vegna köfn- unarefnisbindingar og/eða ákomu en styrkur P-total helst óbreyttur. 3) Styrkur næringarefna minnkar vegna ljóstillíf- unar í hlutfallinu 16/1 þar til efnasamsetn- ing er komin niður í meðalstyrk leysts N og P í útfalli Þingvallavatns. Miðað við þetta einfalda líkan er samanlagt magn þess köfnunarefnis sem blágrænubakt- eríur binda í vatninu og þess sem fellur á vatnið um 20% meira en það magn köfn- unarefnis sem flæðir inn til Þingvallavatns um lindir. Heildarstyrkur leysts fosfórs (P-total) minnkaði marktækt í útfallinu við Stein- grímsstöð (p<0,01; R2=0,49) frá því að vöktun hófst árið 2007 til ársloka 2014 (7. og 8. mynd), og á sama tíma kom fram minnkun kísilstyrks (4. mynd). Þessi tvö efni eru næringarefni og styrklækkun þeirra bendir til aukinnar frumframleiðni og upptöku næringarefna í Þingvallavatni á tímabilinu. Mælingar á PO4 í sýnum sem safnað var á árunum 2007 og 2008 eru óáreiðanlegar sökum tækjabilunar og voru niðurstöður úr þeim mælingum ekki teknar með í útreikninga á með- alstyrk PO4 í 1. viðauka. Næringarefnin 5. mynd. Samband árlegs fjölda sólbletta og árlegs meðalstyrks leysts kísils (SiO2) í Þing- vallavatni. Styrkur leysts kísils í vatninu er í öfugu línulegu sambandi við árlegan fjölda sólbletta.16 Þetta getur skýrst með aukinni virkni kísilþörunga á tímabilum þegar fjöldi sólbletta er mikill. Kísilþörungar taka til sín kísil úr vatni til byggingar skelja sinna og minnka þannig þann styrk kísils sem eftir er í vatninu. – Annual number of sunspots versus annual average concentration of dissolved SiO2 in Lake Þingvallavatn. The negative covariation of sunspot activity and silica concentration in the lake can be explained by increased production of diatoms in the lake during times of high sun- spot activity.16 Diatoms consume silica from the lake and therefore have an effect on the silica concentration of the water. Árlegur fjöldi sólbletta S iO 2 ( μm ól /l) Sog Steingrímsstöð 0 150 160 170 180 190 200 210 50 100 150 200 y = -0,131x + 198,09 R2 = 0,626
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.