Náttúrufræðingurinn - 2020, Qupperneq 111
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
111
Vatnsvik við norðaustanvert Þingvallavatn. Þar koma fram margar ferskvatnslindir og er Vellankatla þeirra mest. Vatnið er um 3°C þar sem
það vellur fram og leggst svo með talsverðum straumi fram í vatnið svo þar festir nánast aldrei ís að vetri. Vatnið í Vellankötlu er ættað ofan úr
Langjökli, og er aldur þess reiknaður 1450 til 2450 ár. Ljósm. Wim van Egmond.
ferskvatnsgeyminum. Þær rekja ættir
sínar 50–100 milljónir ára aftur í tímann
og eru því álíka gamlar og sjálf frum-
gerð Íslands!
Þingvallavatn er eina þekkta vatn
jarðar sem hýsir fjórar mjög ólíkar
gerðir eða afbrigði heimsskautableikju
sem hafa þróast í vatninu eftir að síð-
ustu ísöld lauk. Þá þrífst í vatninu
fágætur stofn ísaldarurriða sem lokað-
ist af þegar land reis í kjölfar hops jökla
eftir ísaldarlok.
Þingvallavatn og vatnasviðið prýða
einnig níu vestrænar tegundir; himbrim-
inn Gavia immer, húsöndin Bucephala
islandica, straumöndin Histrion-
icus histrionicus, bitmýið Simulium
vittatum, smádílið Leptodiaptomus
minutus, eyrarrósin Chamerion lati-
folium, friggjargrasið Platanthera hyper-
borea, grávíðirinn Salix callicarpaea (nú
fjallavíðir Salix arctica) og gulstörin
Carex lyngbyei – allt tegundir sem finna
má í Norður-Ameríku en hvergi annars
staðar í Evrópu utan Íslands.
Þessi einstaka náttúra er orsök þess
að Þingvallavatn og vatnasvið þess er nú
eitt af frægustu vötnum heims, friðað
sem hluti af heimsarfinum af hálfu
Mennta-, menningar- og vísindastofnun
Sameinuðu þjóðanna, UNESCO, fyrir
allt mannkyn.1
FRIÐUN ÞINGVALLA
OG ÞINGVALLAVATNS
Þjóðhátíðarlögin frá 1928 voru langt
á undan sinni samtíð. Með þeim var
stofnað til fyrsta þjóðgarðs á Íslandi,
Þingvallaþjóðgarðs, þá 27 km2 að stærð.
Í lögunum segir að Þingvellir við Öxará
og nágrenni þeirra skuli frá ársbyrjun
1930 vera „friðlýstur helgistaður allra
Íslendinga“. Lögin voru tákn aukins
sjálfstæðis Íslands og um leið var fagnað
1000 ára afmæli Alþingis, hins elsta
í okkar heimshluta, og íslenska þjóð-
veldisins, sem hófst með stofnun þess
og setningu sameiginlegra laga. Þá voru
Þingvellir eins og í fornöld og alþingis-
hátíðin 1930 er mér ógleymanleg. Þá var
landið gamalt menningarland – búland
– ómengað en beitt af sauðfé. Nýfriðað.
Í dag er allt breytt.
Rannsóknir okkar á vistkerfi Þing-
vallavatns sköpuðu áhuga fyrir stækkun
þjóðgarðsins og aukinni friðun vatna-
sviðsins, því að á þeim tíma var orðið
ljóst að það var tilgangslítið að tæplega
30 km2 ferhyrningur væri friðaður án
tillits til umhverfisins í stærra samhengi.
1 Um heimildir vísast m.a. og einkum til:
Pétur M. Jónasson & Páll Hersteinsson (ritstj.) 2002. Þingvallavatn – Undraheimur í mótun. Mál og menning, Reykjavík. 303 bls. (2. útg. 2007).
Pétur M. Jónasson 2004. Um verndun Þingvallavatns og vatnasviðs þess. Fylgiskjal I í þingskjali nr. 322/2004–2005, frumvarpi til laga um verndun
Þingvallavatns og vatnasviðs þess (stjórnarfrumvarp, umhverfisráðherra). Slóð frv. og grg.: http://www.althingi.is/altext/131/s/0322.html
Pétur M. Jónasson & Páll Hersteinsson (ritstj.) 2011. Thingvallavatn – A unique world evolving. Opna, Reykjavík. 326 bls.