Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2020, Page 124

Náttúrufræðingurinn - 2020, Page 124
Náttúrufræðingurinn 124 8. mynd. Kanthleðsla Kóngsvegarins þar sem hann liggur úr vestri að brúnni yfir Flosagjá. Kanthleðslurnar sitt hvorum megin Kóngsvegarins að brúnni komu í ljós þegar unnið var að framkvæmdum við útsýnissvæði. Ákveðið var að varðveita hleðsluna og var hún löguð lítillega undir stjórn Minjastofnunar. Ljósm. Republik. Hvernig mátti það vera að ákveðið var að leggja þennan veg? Veg sem tækni- lega var meingallaður og allar stofnanir og sérfræðingar á sviði umhverfis- og náttúruvísinda töldu óráð? Veg sem ógnaði helgasta stað þjóðarinnar sem búið var að skrá á heimsminjaskrá? Svarið er í senn einfalt og flókið. Ein meginástæðan fyrir því að svo fór sem raun ber vitni er að bæði svokallaðir heimamenn og þingmenn svæðisins töldu vegarlagninguna vera heillaráð. Því komst málið á dagskrá Alþingis 1994 og síðar á vegaáætlun 2003. Ekki verður séð að hugað hafi verið að hugsanlegum neikvæðum áhrifum þegar ákvörðun var tekin, og kostnað- urinn var stórlega vanmetinn. Þegar heimamenn, Alþingi og Vegagerðin hafa komið sér saman um eitthvað sýnir reynslan að því verður trauðla breytt þótt fram komi traust rök fyrir hinu gagnstæða. Þeir sem höfðu það lögbundna hlut- verk að halda uppi vörnum fyrir Þing- vallavatn, landslag og náttúru, tóku það hlutverk ekki nægjanlega alvarlega. Þingvallanefnd skilgreindi hlutverk sitt með afar þröngum hætti og aðhafðist því lítið. Umhverfisstofnun veitti tals- verða viðspyrnu á meðan matsferlið fór fram en gerði lítið gagn þegar fylgja átti eftir skilyrði umhverfisráðuneytis um mælingar á loftaðborinni mengun. Umhverfisráðuneytið hafði á tímabili mörg gögn í hendi til að stöðva málið vegna umtalsverðra umhverfisáhrifa en nýtti það tækifæri ekki. Náttúran fékk hreinlega ekki að njóta vafans. Það fékk hins vegar vegurinn. Um tíma leit út fyrir að UNESCO gæti stoppað vegagerðina þar sem íslensk stjórnvöld höfðu hug á að skrá Þingvallavatn og Þingvelli sem nátt- úruminjar á heimsminjaskrá. Það ferli var síðan stöðvað, vegurinn var í meiri metum en einstök náttúra svæðisins og ávinningur af því að þetta einstaka náttúrusvæði væri á heimsminjaskrá. Sögur um vegagerð sem veldur eyði- leggingu náttúruverðmæta á Íslandi eru margar. Sagan um veg 365 væri því sjálfsagt ekki merkileg ef ekki væri Pétur M. Jónasson. Barátta Péturs gegn vegi 365 á sér ekki mörg fordæmi. Pétur er kominn á efri ár þegar áformin um veginn koma fram í dagsljósið en það brennur eldur í brjósti hans þegar hann sér í hvert stefnir við vatnið sem hann er uppalinn við og sem hann hefur gert þekkt í vísindaheiminum. Höfundur þessarar greinar var sam- ferða Pétri á þessari vegferð og fann fyrir sannfæringarkraftinum og von- inni um að þetta færi vel. Pétur trúði því að stjórnvöld tækju vísindin alvar- lega, að vísindaleg rök hefðu að lokum betur en misvitrir stjórnmálamenn, hinir einsýnu „heimamenn“ og mis- tækar opinberar stofnanir. Því miður reyndist það ekki rétt. En á þessari vegferð eignaðist Ísland hetju. Hetju sem stenst fyllilega samjöfnuð við hina bestu manndáð sem Jónas Hall- grímsson hafði í huga þegar hann með skírskotun til Þingvalla orti: Hvar er þín fornaldar-frægð?
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.