Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2020, Síða 129

Náttúrufræðingurinn - 2020, Síða 129
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags 129 skoltar dverg- og kuðungableikju (1. og 2. mynd). Rannsóknir, bæði athuganir á vistkerfum og tilraunir, á aðskilnaði ferskvatnsfiskafbrigða sýna að samband er milli umhverfisþátta annars vegar og afkomu og svipgerðarbreytileika hins vegar. Þetta eru sterkar vísbendingar um að náttúrulegt val hafi verið að verki við þróun afbrigðanna.37,63,64 o.v. Þessar rannsóknir hafa til að mynda stutt kenn- ingar um mikilvægi samkeppni innan tegunda sem forsendu rjúfandi vals (e. disruptive selection) við þróun auð- lindafjölbrigðni fiska.63,64 Slíkt val á sér til dæmis stað þegar fjölgun ákveðinnar svipgerðar í stofni leiðir til mikillar samkeppni, svo sem um fæðu. Þá njóta svipgerðir sem eru ólíkar þeirri algeng- ustu aðstöðumunarins og tíðni þeirra eykst í stofninum. Þegar slík atburða- rás er heimfærð upp á afbrigðin í Þing- vallavatni má gera ráð fyrir því að stofn- inn sem upprunalega settist að í vatn- inu hafi verið með eina algenga svip- gerð (líklega dæmigerð sjóbleikja) en vegna hagstæðra skilyrða hafi stofninn vaxið hratt og samkeppni milli einstak- linga um búsvæði og fæðu harðnað stig af stigi. Óvenjulegir einstaklingar, t.d. fiskar með óvenju rennilegan lík- amsvöxt eða óvanalega undirmynntir fiskar, lærðu að nýta sér búsvæði eða fæðu sem hentaði þeim vel. Það dró úr neikvæðum áhrifum samkeppni við algengari svipgerðir og jók hlutfallslega hæfni þeirra sem voru ólíkir upphaflegu svipgerðinni. Þetta skilaði sér með tím- anum í mismunandi afbrigðum. Rjúf- andi val hefur átt sér stað. Það er mjög erfitt að mæla náttúru- legt val í villtum stofnum, og krefst gagna um lifun og æxlunarárangur. Vaxtarhraði fiska getur þó verið nokkuð áreiðanlegur mælikvarði á þessa hæfn- isþætti.65 Með því að bera saman þrjá árganga fiska hefur reynst unnt að meta samband vaxtarhraða, sem hæfnismet- ils, við líkamslögun, fæðu og sníkju- dýrabyrði murtu og dvergbleikju í Þing- vallavatni. Af samanburðinum má leiða nokkuð öruggar líkur að því að rjúfandi val er að verki við aðskilnað afbrigð- anna. Ekki er þó um einfalt samband fæðu og útlits að ræða, heldur flókið samspil þar sem sníkjudýr og mögulega afránshætta (t.d. urriða á dvergbleikju) kemur við sögu.35 Rannsóknir á bleikju- afbrigðunum sem og öðrum fiskum hafa sýnt að hlutur sníkjudýra og afránshættu í rjúfandi vali getur verið umtalsverður.66–68 Þegar á heildina er litið sýna þessar rannsóknir að samband svipgerðar, búsvæða, fæðu og sníkju- dýra við þróun bleikjuafbrigðanna er mikilvægur þáttur.2,7,8,30,36,42,69,70,71 Höfum í huga að allt bendir til að bleikjuaf- brigðin séu nú vel aðlöguð búsvæðum sínum og fæðu. Það minnir okkur á að á fyrri stigum aðskilnaðarins hefur eðli rjúfandi vals mjög líklega verið annað en við sjáum núna. ÞROSKUNARFRÆÐILEG UNDIR- STAÐA SVIPFARSBREYTILEIKA Víkjum nú að tilurð svipgerðar- breytileikans sem náttúrulegt val getur verkað á. Það er sameiginlegt viðfangsefni þroskunar- og þróunar- fræðinnar.72,73 Hér er viðfangsefnið breytileiki í svipgerð milli einstaklinga innan hverrar kynslóðar. Hann getur verið fólginn í mismun í lögun höfuðs og kjálka, í því hversu straumlínu- eða kubbslaga einstaklingarnir eru, hvernig vexti og kynþroska er háttað og í mis- munandi atferli einstaklinga. Líklegt er að allir þessir þættir hafi áhrif á árangur fiskanna í lífshlaupinu. Hvers vegna er þroskaferlið breytilegt? Hvernig verður frjóvgað hrogn að kynþroska bleikju? Í 2. mynd. Fæðuval og búsvæðaskipting bleikjuafbrigðanna í Þingvallavatni. Skífuritin sýna magainnihald fiska (A) veiddra í botnnet á strandbotn- inum (2–8 m dýpi), í (B) kransþörungabeltinu (12–10 m dýpi) og (C) úti í vatnsbolnum (0–72 m dýpi) síðsumars (ágúst-september). Skífuritin eru byggð á öskufrírri þurrvigt fæðuhópa í magainnihaldi bleikja veiddra 1983 og 1984.7,8 – Diet and habitat use of the four charr morphs in Thing- vallavatn, Iceland. The pie-charts show the average stomach content of fish caught in bottom nets on (A) the littoral bottom (2–8 m depth), in the Nitella zone (12–20 m depth), and in floating nets in the pelagic zone (0–72) in late summer (August-September). The pie charts are based on the ash free dry weight of prey groups in the stomach samples.7,8
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.