Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2020, Page 133

Náttúrufræðingurinn - 2020, Page 133
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags 133 MIKILVÆGI ÞEKKINGAR FYRIR SKYNSAMLEGA NÝTINGU OG VERNDUN Eins og fram hefur komið í þessari grein hafa rannsóknir á bleikjuafbrigðunum í Þingvallavatni verið umfangsmiklar og eru enn. Að lokum ætlum við að ræða um framtíðina, og þá ekki síst mikilvægi þess að vakta vistkerfi vatnsins með víðtækum hætti, meðal annars í ljósi áhrifa mannsins í náttúrunni, svo sem loftslagsbreytinga. Þekking á vistkerfinu og bleikjuafbrigð- unum er afar mikilvæg þegar kemur að áætlunargerð um skynsamlega nýtingu og verndun Þingvallavatns og umhverfis þess. Hér er á ferðinni málaflokkur sem um árabil hefur verið Pétri M. Jónassyni afar hugleikinn.133 o.v. Í almennri umræðu um mikilvægi líffræðilegrar fjölbreytni hefur á undan- förnum árum verið lögð mikil áhersla á tilvist stofna og afbrigða sem finnast innan tegunda. Þannig hefur verið sýnt fram á að fjölbreytni innan tegundar getur skipt jafnmiklu máli og fjölbreytni milli tegunda þegar kemur að starfsemi vistkerfa,29,134,135 sem síðan getur haft áhrif á seiglu vist- kerfa og möguleika þeirra til að bregðast við umhverfisbreytingum eins og hlýnun loftslags.136,137 Hér getur skipt miklu máli á hvaða stigi aðskilnaðarferli afbrigð- anna er, hvaða þróunar- og þroskunarlegu ferlar eru að verki og hversu viðkvæmir þeir eru fyrir umhverfisbreytingum, (sbr. 3. mynd).138 Í vistkerfi Þingvallavatns leika bleikjuafbrigðin fjögur lykilhlutverk. Þau eru aðalþátttakendur í fæðuvef þess og hafa því mikil áhrif á alla starfsemi vist- kerfisins, sem og á útbreiðslu og afkomu lífvera í og við vatnið. Yfirstandandi loftslagsbreytingar af mannavöldum hafa þegar haft margvísleg áhrif á lífríki norðurslóða, ekki hvað síst á vistkerfi ferskvatns.139,140 Þetta lýsir sér meðal annars með fækkun í stofnum eða tilfærslu tegunda vegna breyttra aðstæðna, svo sem hitabreytinga sem hafa bein áhrif á afkomu eða óbein áhrif vegna breytinga á vistkerfum, eða vegna breyttra vatnsfarvega. Margt bendir til að hérlendis hafi bleikjan sums staðar látið undan síga í kjölfar hlýnunar,141–144 og á sama tíma hafi urriði haslað sér völl, til dæmis í ám á Norðurlandi þar sem bleikja var áður ríkjandi.143,144 Síðan árið 2007 hafa vatnsgæði og ákveðnir þættir í lífríki Þingvallavatns verið vaktaðir.145 Þessi gögn og eldri upplýs- ingar um meðalhita Þingvallavatns sýna 1,3–1,6°C hækkun á meðalhita mánaðar á árabilinu 1962–2016, og enn fremur að á síðari árum hafa oftar myndast afger- andi hitaskil í vatnsbolnum á sumrin.146 Nýlega hafa orðið ákveðnar breytingar á samfélagi svifþörunga sem rekja má til hlýnunar vatnsins og aukinnar ákomu næringarefna.146 Árið 2019 hófst skipu- leg vöktun á fiskstofnum vatnsins. Fyrstu niðurstöður, sem og almenn reynsla veiðibænda við vatnið, sýna að urriða hefur fjölgað mikið í vatninu.147 Ástæður þessa eru ekki að fullu ljósar en tengjast líklegast ræktunarátaki sem fór aðallega fram á árunum 1999–2004. Þá var sleppt alls 119 þúsund sumaröldum og tæplega 4 þúsund ársgömlum seiðum af Öxar- árstofni í vatnið.148 Í þessu sambandi verður einnig að geta annarra breytinga sem orðið hafa á vistkerfi vatnsins hin síðari ár og stafa af hnattrænni lofts- lagsröskun eins og áður var vikið að.146 Leiða má líkur að því að hitabreytingar í Þingvallavatni geti ásamt tengdum þáttum haft áhrif á tilvist og framtíð bleikjuafbrigðanna. Gera má ráð fyrir að aðlögunarhæfni þeirra og mótanleiki geri þeim kleift að bregðast við breytingunum að vissu marki149–151 en breytingar á hita- stigi geta haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir aðstæður í búsvæðum, ekki síst við hrygningu og uppvöxt seiða. Þannig sýndi rannsókn á afbrigðum bleikju (Salvelinus fontinalis) í vötnum í Qué- bec, Kanada, að ferðir bleikjuafbrigða innan stöðuvatns afmörkuðust meira eftir að vatnið hlýnaði vegna loftslags- breytinga.149 Það er afar mikilvægt að huga nánar að áhrifum hlýnunar og annarra umhverfisbreytinga af völdum mannsins á Þingvallavatn, ekki síst á til- vist og þróun bleikjunnar. Nauðsynlegt er að koma á fót skipulegum áætlunum um umgengni og verndun vistkerfisins til framtíðar. Sú þekking sem nú liggur fyrir um vistkerfi vatnsins og bleikjuafbrigðin er afar verðmæt í þessu skyni, og ef vel tekst til geta ofangreindar áætlanir orðið fyrimynd víða um heim. SUMMARY VARIABILITY AND EVOLUTION OF ARCTIC CHARR MORPHS IN LAKE THINGVALLAVATN In the last decades we have seen re- newed emphasis in studies of the origin and evolution of biological novelty and diversity. In this respect studies on north- ern freshwater fishes have been very valu- able revealing multiple examples of rapid intraspecific divergences in the post-gla- cial era. Studying these systems is of great value in unravelling the various processes involved in adaptation and speciation. Here we review studies of a system where four resource morphs of Arctic charr, Salvelinus alpinus, have evolved in a sin- gle lake, Thingvallavatn in SW-Iceland, in the last 10–11 thousand years. We propose a model for the evolution of resource polymorphism, where colonizing charr encountered diverse and novel niches but little competition from other species. Intense intraspecific competition then led to broadening of phenotypic distributions via plastic responses and frequency-de- pendent disruptive selection, involving phenotypic characters related to acquisi- tion of the diverse resources, such as food, habitat and mating opportunities. The resulting resource morphs are now very distinct in terms of morphology, life his- tory, behaviour and ecology and three of the four clusters tightly genetically indi- cating a high degree of reproductive iso- lation. As a result the Arctic charr are, at present, effectively utilizing all the major habitats of the lake and are influencing the structure and function of the lake’s ecosys- tem. In recent years studies have offered important insights into the developmental processes that generate variation in key phenotypic traits, and how this may be acted upon by natural selection. For exam- ple, the results suggest that the colonizing charr were in many respects very plastic but as the morphs diverged and adapted to different niches some aspects of plas- ticity decreased or were lost, e.g. through canalization of development. At present, research focuses on determining potential isolation mechanisms among the morphs, as well as the processes behind the differ- ential developmental trajectories, e.g. the underlying genetic and epigenetic dynam- ics. The scientific and cultural value of resource polymorphic systems calls for their consideration in any plans of sus- tainable use and conservation of lakes like Thingvallavatn and it‘s ecosystem.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.