Fræðaþing landbúnaðarins - 03.02.2006, Page 115
Fræðaþing landbúnaðarins 2006
SKÓGVATN
Ahrif skógræktar á vatnsgæði, vatnshag og vatnalíf
Guðmundur Halldórsson,
Rannsóknastöð skógræktar, Mógilsá
Dagana 15. og 16. janúar 2004 var haldin ráðstefna á Laugum í Sælingsdal.
Yfirskrifm var: Ráðstefna um samspil milli skógarþekju og lífs í ám og vötnum. Þeir
aðilar sem héldu ráðstefnuna voru: Vesturlandsskógar, Félag skógarbænda á
Vesturlandi, Skógrækt ríkisins, Veiðimálastofnun og Landbúnaðarháskólinn á
Hvanneyri. í framhaldi af þessari ráðstefnu spratt upp umræða um að þörf væri á
frekari rannsóknum á þessu sviði hér á landi. I því skyni var skipaður samstarfshópur
sem í sátu eftirtaldir aðilar:
Frá Rannsóknastöð Skógræktar ríkisins
Bjami Diðrik Sigurðsson, kerfisvistfræðingur,
Aðalsteinn Sigurgeirsson, skógerfðafræðingur og
Guðmundur Halldórsson, skordýrafræðingur, sem jafnframt er hópstjóri
Frá Háskóla Islands
Gísli Már Gíslason, vatnalíffræðingur og
Sigurður Reynir Gíslason, jarðefnafræðingur.
Frá Orkustofnun -
- Kristinn Einarsson, vatnafræðingur og
- Freysteinn Sigurðsson, jarðfræðingur
Frá Veiðimálastofnun
- Sigurður Guðjónsson, fískilíffræðingur
Frá Landbúnaðarháskóla Islands
- Eva Ritter, jarðvegsefnafræðingur.
Frá Umhverfísstofnun
- Franklín Georgsson, gerlafræðingur
Þessi hópur mótaði verkefni sem kallað var SKÓGVATN og markmið þess er
þekking á áhrifum skógarþekju á; a) vatnsgæði, b) vatnsbúskap og c) líf í
straumvötnum.
Hugmynd verkefnishópsins er að velja svæði sem em; I) skóglaus, II) vaxin barrskógi
og III) vaxin birki. Þar yrði síðan ákvarðað hvemig gróðurfar hefur áhrif á A)
vatnsbúskap (t.d. sveiflur í vatnsrennsli) og B) magn og eiginleika þess hluta lífrænnar
framleiðslu þurrlendisvistkerfa sem berst í; 1) jarðvatn, 2) grannvatn og 3) straumvatn
og hefur síðan áhrif á; a) efnainnihald vatns, b) örverainnihald vatns, c) smádýralíf í
vatni og b) fiskistofna í straumvötnum.
Verkefnishópurinn tók upp viðræður við Orkuveitu Reykjavíkur um íjármögnun
verkefnisins. Þar era tengiliðir; Einar Gunnlaugsson, deildarstjóri rannsókna og
Kristinn H. Þorsteinsson garðyrkjustjóri. Niðurstaða þeirra viðræðna varð að OR
ákvað að veita verkefninu styrk að upphæð 4 milljónir króna. Nú er verið að vinna að
frekari fjármögnun verkefnisins.
113